Lífið

Trommari lýsir mótórhjólakeppni

Björgvin Ploder ekur um á sama mótorhjóli og var notað í frægu myndbandi Sniglabandsins við lagið sívinsæla Jólahjól.
Björgvin Ploder ekur um á sama mótorhjóli og var notað í frægu myndbandi Sniglabandsins við lagið sívinsæla Jólahjól. MYND/GVA

Björgvin Ploder, trommari Sniglabandsins, lýsir mótorhjólaþættinum Motogp sem hóf göngu sína á Skjá einum um síðustu helgi.

Það eru hæg heimatökin hjá Björgvini því hann starfar sem hljóðmaður á Skjá einum og var hann meira en lítið æstur þegar hann frétti af því að stöðin hefði fest kaup á uppáhaldsþættinum sínum. „Ég er búinn að fylgjast með þessu í tólf til fimmtán ár á Eurosport,“ segir Björgvin. „Ég fór beint í mína yfirmenn og sagðist ætla að lýsa þessu.“

Áttu yfirmennirnir erfitt að standast þessa ákveðni Björgvins og réðu hann á staðnum. „Þessi keppni er í sama flokki og Formúlan er fyrir bílana. Þetta er samt ekki keppni í því hver er fljótastur að skipta um dekk eða setja bensín á, heldur keppni í því hver er fljótastur að keyra. Þeir stoppa ekkert og það er ofboðslega skemmtilegt að fylgjast með þessu,“ segir hann og bætir því við að hraðskreiðustu hjólin fari upp í 300 km hraða. Björgvin er, eins og gefur að skilja, forfallinn mótorhjólaáhugamaður og á hvorki fleiri né færri en fjögur hjól.

Eitt þeirra er "67 módel en hin þrjú eru "80 módel. Átján ár eru nú liðin síðan hann fór með félögum sínum í Sniglabandinu í eftirminnilega mótorhjólaferð til Sovétríkjanna þáverandi, þar sem þeir feyktust um á fákum sínum og héldu tíu tónleika. „Við vorum í mánuð í Sovét og þvældumst um öll Eystrasaltsríkin, fórum til Moskvu, Hvíta Rússlands og síðan til Leníngrad, sem núna heitir St. Pétursborg. Ég hef aldrei verið jafnfrægur og þá en það vissi bara enginn af því.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.