Logi og Svanhildur kaupa einbýlishús á Dalvík 12. júní 2007 03:30 Um er að ræða lítið og sætt einbýlishús sem er falið af stórum trjám sem einkenna garðinn. Mynd/Halldór Ingi „
Þetta er skemmtilegt hús með skemmtilega sögu. Sundlaugin er í næstu götu, skíðasvæðið er rétt fyrir ofan og á Dalvík er allt til alls. Okkur líður mjög vel hérna og viljum vera hér sem allra mest,“ segir sjónvarpskonan Svanhildur Hólm Valsdóttir, en hún og eiginmaður hennar Logi Bergmann Eiðsson hafa fest kaup á fallegu einbýlishúsi á besta stað á Dalvík, þaðan sem Svanhildur er ættuð og dvaldi löngum stundum í sinni æskutíð. Um er að ræða sögulegt hús fyrir Svanhildi og fjölskyldu hennar en það var byggt árið 1953 af afasystur Svanhildar og eiginmanni hennar. Það má því segja að húsið sé aftur komið í eigu ættarinnar. „Þetta verður meira heilsárshús en sumarhús því það koma tímabil þar sem við erum mikið fyrir norðan. Logi hefur einhver stórkostleg áform um að ganga í golfklúbb á Dalvík og spila old-boys fótbolta þannig að það er nóg um að vera. Við erum samt ekki flutt norður þar sem okkar atvinna er ennþá í höfuðborginni,“ segir Svanhildur. Fiskidagurinn mikli er aðra helgina í ágúst og eins og siður er verður fiskisúpa á boðstólum í flestum heimahúsum fyrir gesti og gangandi. Og Svanhildur, sem að eigin sögn býr til býsna góða fiskisúpu, stefnir á að stilla upp tveimur logandi kyndlum fyrir framan sitt hús á Fiskideginum mikla. „Þrátt fyrir að hafa alltaf ætlað hef ég aldrei komist á Fiskidaginn. En núna er ég staðráðin í að taka þátt í hátíðahöldunum,“ segir hún. Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkur, er að vonum hæstaánægð með að fá þau hjón í bæinn. „Ég er afskaplega glöð. Svanhildur er jú líka ættuð héðan,“ segir Svanfríður um kaup Loga og Svanhildar á húsinu. „Ég fagna hverjum þeim sem flyst hingað. Það er næga atvinnu að fá og uppgangurinn er mikill. Ég er glöð að fá þessi heiðurshjón í bæinn.“
Mest lesið Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Lífið Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Fleiri fréttir „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Sjá meira