Þurfti 29 metra til að taka á loft 12. júní 2007 01:45 Hér sést hvernig Jóhann nær að „stolla“ yfir bandstrenginn sem komið var fyrir á Njarðvíkurheiði. Jóhann þurfti 29 metra flugbraut til að koma vél sinni á loft. MYND/Víkurfréttir
Íslandsmet í flugtakskeppni var sett á Njarðvíkurheiði á laugardag þegar Jóhann Gestur Jóhannsson, flugumferðarstjóri, flugmaður og fluvélagrúskari í Reykjanesbæ, náði að koma fisi sínu á loft á aðeins 29 metra langri braut. Jóhann flaug sinni eigin vél af gerðinni Zenith 701 sem hann smíðaði sjálfur. „Þessi vél er með sérstökum slottum sem gerir henni kleift að taka á loft á stuttri braut og „stolla“ á tiltölulega litlum hraða. Ég þarf ekki að vera á nema 25 mílna hraða til að ná henni upp,“ segir Jóhann, en þetta var í fyrsta sinn sem hann tók þátt í slíkri keppni. Reyndar er ekki vitað til þess að áður hafi verið keppt í viðlíka þrautum á Íslandi. Keppnin fór þannig fram að keppendur fengu ákveðna vegalengd til að reisa flugvél sína yfir streng sem strekkt var í um eins metra hæð. Jóhann var sá eini sem sleit ekki bandið. „Ætli þetta hafi ekki verið blanda af kunnáttu og hentugri flugvél.“ Jóhann er meðlimur í fisfélaginu Sléttan sem einmitt stóð fyrir flugtakskeppninni um helgina á árlegum flugdegi félagsins. Auk flugtakskeppninnar var efnt til ýmissa annarra þrauta og leikja, til dæmis í lendingum og sekkjakasti úr flugvélum. „Þetta var stórskemmtilegur dagur og margir mættu á staðinn til að fylgjast með.“ Jóhann hefur smíðað fjórar flugvélar um árin og hefur að eigin sögn einstaklega gaman af. „Þeir hafa gert grín að því að ég sé svona duglegur í þessu og kalla litlu verksmiðjuna í bílskúrnum heima „Jóeing“ í staðinn fyrir Boeing,“ segir Jóhann og hlær.
Mest lesið „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Lífið Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Lífið 50+: Það sem fólk sér helst eftir á dánarbeðinum Áskorun Kemur út sem pankynhneigð Lífið Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins Lífið Langömmulán hjá Eddu Björgvins Lífið Skammar vini sína: „Hættum Happy birthday á Facebook“ Menning Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Lífið Nýju fötin forsetans Lífið Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár Menning Fleiri fréttir „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins „Lítið ömmugull á leiðinni“ hjá Siggu Lund Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Langömmulán hjá Eddu Björgvins Kemur út sem pankynhneigð Vín mun hýsa Eurovision á næsta ári „Við munum aldrei leyfa minningu hennar að deyja“ Einfaldar leiðir til að róa taugakerfið Nýju fötin forsetans Erla og Ólafur selja glæsilegt einbýli í Vesturbænum Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum Dúnmjúkir pizzasnúningar Fáklædd og glæsileg við sundlaugarbakkann Flugfreyjusætið var inni á klósettinu Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Elskar Kennedy þó þeir ræði lítið pólitík í matarboðum Kennir kettinum hundatrix og heklar á hann föt Martin og Anna María selja hönnunaríbúð í Garðabæ Þaggar niður í orðrómi um sambandsslit Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Gamlir samherjar funduðu á fiskistað Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Saga Matthildur orðin tveggja barna móðir WikiLeaks og aðför stórvelda: Uppljóstrun aldarinnar undirbúin í Reykjavík Bryndís Haralds amman og Gunni Helga afinn Annie Mist á von á þriðja barninu Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Diddú gerir himneskt pestó og segist búa í Góða hirðinum Sjá meira
Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár Menning
Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár Menning