Á vergangi vegna veikinda Viktoría Hermannsdóttir skrifar 11. apríl 2015 21:20
Erika E. Inderyanti hefur verið á götunni í þrjá mánuði eftir hún missti íbúð sem hún leigði hjá Félagsbústöðum. Hún segist ráðalaus og ekki vita hvernig hún eigi að finna heimili fyrir sig og son sinn. Hún segist ekki hafa efni á því að leigja á almennum markaði. Erika hefur síðustu fimmtán ár glímt við ýmis veikindi sem hafa orsakað það að hún er 75 prósent öryrki. Á síðasta ári fékk hún berkla í eitla á hálsi og vegna veikindanna lenti hún í vanskilum með leiguna. Hún náði ekki að semja og flutti út úr íbúðinni þegar hún fékk útburðartilkynningu. Það var í janúar og síðan þá hafa hún og nítján ára sonur hennar verið heimilislaus en fengið að gista hjá vinafólki. „Eftir veikindin ég á ekki efni á að borga, ég var að biðja um hjálp en mér var bara vísað þangað og hingað. ég hef yfirleitt staðið mig vel í fimmtán ár.“ Erika hefur búið á Íslandi í 22 ár. Fyrstu árin rak hún verslun ásamt fyrrverandi eiginmanni sínum sem dó fyrir fimmtán árum síðan. Frá því hefur hún staðið ein að uppeldi sona sinna og lagt sig mikið fram til þess að þeir hafi báðir getað menntað sig. Þrátt fyrir veikindin þá hefur hún alltaf unnið mikið þegar heilsan hefur leyft. „Ég hef verið rosalega fegin að ég hef getað staðið á eigin fótum. Ég hef reynt að standa mig vel með menntun barnanna minna, litli er rétt að klára Versló og útskriftin hans er í maí,“ segir Erika en yngri sonur hennar er nítján ára. „Ég reyni að standa mig eins og ég get.“ Erika segist vera í þeirra stöðu í dag að sjá ekki fram á að fá íbúð frá félagsþjónustunni og getur ekki leigt á almennum markaði. Hún sé því föst. „Málið er að ég er líka í vandræðum fjárhagslega, ég hef ekki efni á borga tryggingu á almenna markaðnum,“ segir hún. „Húsaleigan er svo dýr, miðað við húsaleigubætur sem ég fæ ég þarf samt kannski að borga 140 þúsund fyrir íbúð og ég hef bara ekki efni á því.“ Hún segist vera ráðalaus yfir því hvað hún eigi að gera. „Ég væri til í að þeir myndu gefa mér tækifæri,“ segir hún. „Ég vil ekki fá vorkunn heldur tækifæri til þess að komast út úr þessu og byggja upp á nýtt lífið mtit eins og ég hef alltaf gert.“
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Sjá meira