Svona skipun mun alltaf vekja upp efasemdaraddir 12. janúar 2008 16:59
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag um skipun Þorsteins Davíðssonar í embætti héraðsdómara, að afgerandi frávik frá niðurstöðu lögmæltrar matsnefndar muni alltaf vekja upp efasemdarraddir um að faglegar forsendur ráði. Það væri sérstaklega óheppilegt þegar dómstólar landsins ættu í hlut af augljósum ástæðum. Af virðingu fyrir þrískiptingu ríkisvaldsins bæri að forðast slíkt í lengstu lög. Utanríkisráðherra sagði að umræða hefði einnig skapast um embættisveitingar flokksbróður hennar Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra. Þar væri ekki um það að ræða að gengið væri á svig við niðurstöðu faglegrar dómnefndar og aðstæður því allt annars eðlis. Þegar ráðið væri í stöður hlytu alltaf að koma inn í myndina matskenndir þættir. Engu að síður skiptir það meginmáli að rökstuðningurinn sé skýr og hinir matskenndu þættir taki mið af því sem um var beðið þegar staðan var auglýst. Hitt er svo annað mál að ef til vill gefa tilvikin tilefni til að styrkja enn frekar faglega ferla stjórnkerfisins. "Þar hlýtur meðal annars að koma til álita að fjölga sjálfstæðum dómnefndum við mat á umsækjendum um æðstu stjórnunarstöður og kveða enn skýrar á um í lögum hvernig ráðherra skuli fara með niðurstöður slíkrar nefndar," sagði Ingibjörg Sólrún.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Innlent Fleiri fréttir Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Sjá meira