Borgarfulltrúar VG kalla oftast inn varamenn 8. desember 2008 14:09 Þorleifur Gunnlaugsson og Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúar Vinstri grænna.
Borgarfulltrúar Vinstri grænna hafa oftast kallað inn varamenn fyrir sig á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur það sem af er ári ef miðað er við fjölda þeirra í borgarstjórn. Borgarfulltrúar geta kallað inn varamenn eigi þeir ekki kost á að mæta þegar fundur í borgarstjórn hefst eða á meðan á fundi stendur. Svandís Svavarsdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúar VG, hafa 21 sinni kallað inn varamenn til að koma inn í sinn stað. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru sjö og hafa þeir samanlegt 44 sinnum fengið varamenn í sinn stað. 25 sinnum hafa fjórir borgarfulltrúar Samfylkingarinnar kallað inn varamenn. Haldnir hafa verið 19 fundir í borgarstjórn þetta árið. Laun borgarfulltrúa skerðast ekki Grunnlaun borgarfullrúa eru 80% af þingfararkaupi eða 449.616 krónur á mánuði. Í þeim felast að fullu greiðslur fyrir setur í nefndum og ráðum borgarinnar. Laun borgarfulltrúa skerðast ekki forfallist þeir eða mæti aðeins á hluta af tilteknum borgarstjórnarfundi. 1. varaborgarfulltrúar á föstum launum Fyrstu varaborgarfulltrúar eru allir á föstum launum. Grunnlaun þeirra eru 70% af grunnlaunum borgarfulltrúa eða 314.731 krónur. Varaborgarfulltrúarnir fá launin greidd óháð því hvort þeir komi inn á einn eða fleiri borgarstjórnarfundi. Frá fundi borgarstjórnar 21. ágúst sl. Varaborgarfulltrúarnir eru; Sif Sigfúsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokk, Dofri Hermannsson Samfylkingu, Sóley Tómasdóttir fyrir Vinstri græna, Marsibil Sæmundardóttir Framsóknarflokki og Margrét Sverrisdóttir fyrir F-lista. Aðrir varamenn fá greiddar 22.481 krónur fyrir setu á fundum í borgarstjórn og gildir einu hvort viðkomandi sitji allan fundinn eða hluta af honum. Marta hefur mætt oftar en Sif Marta Guðjónsdóttir, þriðji varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur komið inn sem varamaður á 16 af 19 borgarstjórnarfundum. Sif hefur fimm sinnum verið kölluð inn. Næst á eftir Mörtu kemur Sóley sem mætt hefur á 14 fundi. Því næst kemur Dofri sem hefur tíu sinnum á árinu verið kallaður inn. Á eftir honum koma Hermann Valsson, annar varaborgarfulltrúi VG, og Ragnar Sær Ragnarsson, fjórði varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem mætt hafa á sjö fundi.
Tengdar fréttir Hanna Birna mætir best en Sigrún Elsa verst Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur mætt verst allra borgarfulltrúa á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur það sem af er ári. 8. desember 2008 12:00 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira
Hanna Birna mætir best en Sigrún Elsa verst Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur mætt verst allra borgarfulltrúa á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur það sem af er ári. 8. desember 2008 12:00