Útilokar ekki málefnasamning nýs meirihluta 26. nóvember 2007 12:50 MYND/Stöð 2
Borgarstjóri útilokar ekki að gerður verði málefnasamningur milli meirihlutans í borginni á næstu vikum. Hann bendir þó á að fjárhagsáætlun sem hann mælti nýlega fyrir sé í raun málefnaskrá. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt núverandi meirihluta í borginni fyrir að hafa ekki enn gert málefnasamning. Í gærkvöldi var Dagur B. Eggertsson borgarstjóri gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamáli. Þar var hann spurður út í hvort og þá hvenær meirihlutinn hygðist gera málefnasamning. Dagur benti á að nýr meirihluti hefði tekið við á sérstökum tíma og hann hefði fengið ókaraða fjárhagsáætlun í fangið. Meirihlutinn hefði tekið þá ákvörðun að vinna sig í gegnum það út frá hverjum og einum málaflokki. Línur hefðu verið lagðar þar og því mætti segja að fjárhagsáætlunin væri ekki einungis málefnaskrá heldur væri búið að finna fé fyrir hvert einasta verk. Aðspurður hvort þá væri ekki von á málefnasamningi sagði Dagur að hann myndi ekki útiloka það en bætti við: „Ég held að fólk gefi líka harla lítið fyrir þessi þunnu, stuttu plögg sem segja eiginlega ekki neitt, málefnasamning sem gengur út á það að gera áætlun um eitthvað." Dagur sagði enn fremur: „Ég held að það sem nútímastjórnmál eiga að ganga út á er skýra sýn, skýra forgangsröðun og beinharðar ákvarðanir hugmyndir og þannig ætlum við að vinna."
Mest lesið Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Innlent Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Innlent Gylfi Ægisson er látinn Innlent „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Innlent Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Erlent Hundruð kvenna einmana: „Er skrýtið að eiga engar vinkonur?“ Innlent Staða Sjálfstæðisflokksins versnar eftir þinglok Innlent Spellvirkinn líka grunaður um líkamsárás og mansal Innlent Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Erlent Hóteleigendur vilja byggja á verndarsvæði og ábúendur ekki sáttir Innlent Fleiri fréttir „Sorlega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Launaði neitun á gistingu með löðrungi Óvinsældir eftir þinglok og meint leyndarmál frönsku forsetahjónanna Innan við þriðjungur andvígur olíuleit Ætlar fyrir Mannréttindadómstólinn og segir fréttaflutning villandi Gasútstreymi minnkandi en gosmóðu enn spáð Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Annar stór skartgripaþjófnaður í miðborginni „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Spellvirkinn líka grunaður um líkamsárás og mansal Staða Sjálfstæðisflokksins versnar eftir þinglok Hóteleigendur vilja byggja á verndarsvæði og ábúendur ekki sáttir Sjálfstæðisflokkur sjaldan mælst minni Þurfti að hætta sundi af öryggisástæðum Gylfi Ægisson er látinn Hundruð kvenna einmana: „Er skrýtið að eiga engar vinkonur?“ Ekið á ökumann rafmagnshlaupahjóls og gámur á hliðina Gosmóða mælist í morgunsárið en ætti að minnka með deginum Viðbragðsaðilar kallaðir út vegna elds í sanddæluskipi á Ísafirði Kári um njósnatalið: „Óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“ Handtekinn í Laugardal grunaður um mansal „Held að sjávarútvegurinn hafi misst samtalið við þjóðina“ 250 þúsund gestir skemmtiferðaskipa á Akureyri í sumar „Hvað næst? Sparka í okkur? Berja okkur? Stinga einhverju í okkur?“ Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjarlægur draumur Slóðinn að gosinu einungis fyrir viðbragðsaðila og jeppa Icelandia Sjá meira