Kristján Þór neitar að hafa lofað Hagkaupum verslun á Akureyrarvelli 26. nóvember 2007 18:46
Fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri neitar að hann hafi verið búinn að gera samkomulag um Hagkaupsverslun þar sem Akureyrarvöllur stendur nú eins og áhöld hafa verið uppi um. Föst skeyti hafa gengið milli Jóhannesar Jónssonar sem jafnan er kenndur við Bónus og Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur bæjarstjóra vegna skipulagsmála á Akureyri. Sigrún Björk hefur opinberlega sagst mótfallin því að Hagkaupsverslun myndi rísa á svæðinu og talið það óhugsandi. Jóhannes í Bónus brást illa við yfirlýsingu hennar í Morgunblaðinu á dögunum og sagðist hafa verið dreginn á asnaeyrunum. Jóhannes vísaði til þess að fyrrverandi bæjarstjóri Kristján Þór Júlíusson sem nú gegnir þingmennsku fyrir Sjálfstæðisflokkinn, hefði áður gefið sér ádrátt um að þarna myndi rísa Hagkaupsbúð. En þar stendur orð gegn orði. Í bæjarsjónvarpinu á Akureyri var Kristján Þór spurður um helgina út í hvort hann kannaðist við að hafa gert slíkt samkomulag við Jóhannes og sagðist hann ekki kannast við það. Sumir líkt og Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-listans hafa sagt að Sigrún Björk hafi verið of fljót á sér í yfirlýsingum um svæðið. Sjálf hefur Sigrún Björk talað fyrir lágreistri íbúabyggð þar sem völlurinn stendur nú, en Kristján Þór er ósammála henni um að það sé besti kosturinn.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Fleiri fréttir Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Sjá meira