Innlent

Söguleg þáttaskil hjá kirkjunni

MYND/Vilhelm
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sagði á Kirkjuþingi í morgun að söguleg þáttaskil hefðu orðið hjá kirkjunni með samþykkt tillögu um að heimila prestum að staðfesta samvist samkynhneigðra. Kirkjuþingsfulltrúar klöppuðu eftir að ljóst varð að tillaga biskups var samþykkt samhljóða.

„Það hefur náðst niðurstaða í máli sem hefur reynst langvinnt og örðugt úrlausnar," sagði biskup og bætti við: „Við skulum gleðjast yfir því." Þakkaði hann kirkjuþingsfulltrúum fyrir góða og málefnalega umræðu og þann skýra vilja til samtstöðu sem birst hafi í vinnu að málinu. „Ég vona og bið að þau skilaboð berist nú héðan og til þjóðarinnar," sagði biskup.

Benti hann á að það markmið að leiða málið til lykta á Kirkjuþingi hefði náðst og niðurstaðan byggðist á löngu lýðræðisferli og rækilegri samræðu í samfélaginu og á öllum stigum kirkjustarfsins.

Menn gæti hófsemdar í umræðunni

Bað hann leikmenn og kennimenn að una niðurstöðunni og að fylgja eftir sáttinni sem hefði náðst. „Ég vil höfða til ábyrgðar ykkar og biðja þess að menn gæti allrar hófsemdar og sanngirni í umræðunni. Kirkjan hefur skipst í fylkingar í viðkvæmu máli, deilumáli sem snertir djúpan streng í sálum fólks og það hafa fallið þung orð og þungir dómar á báða bóga."

Biskup sagði enn fremur að samkynhneigðir hefðu oft tjáð sig um það að þeim fyndist þeir vera útilokaðir af hálfu þjóðkirkjunnar. „Ég vona og bið að allt það í orðræðu og framkomu sem ýtt hafi undir þá tilfinningu verði fyrirgefið. Og ég bið að þau sár og sviði sem þau systkini okkar og aðstandendur þeirra hafa mátt þola megi gróa. Og eins bið ég þess að gróa megi þau sár og sviði sem þau systikini okkar sem fundist hefur að virðing þeirra við hefðbundin gildi hafi verið vanvirt og afflutt sem fordómar, ég vona að þau sár grói líka," sagði biskup.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×