Rústaði Goyaverðlaununum 13. október 2005 15:31
Fókus fylgir DV í dag og þar er eins og alltaf ítarleg umfjöllun um allar nýjustu bíómyndirnar sem eru komnar á Klakann. Þessa helgina eru Meet the Fockers, Million dollar baby, Assault on Precinct 13 og spænska myndin The Sea Inside, eða Mar Adentro, frumsýndar. Sú síðastnefnda vann fleiri Goya-verðlaun á Spáni en nokkur önnur mynd hefur gert. Ferill spænska leikstjórans Alejandro Amenábar er ferill snillings. Hann og vinur hans Mateo Gil hættu í kvikmyndaskóla í Madrid til að gera sína fyrstu mynd saman, tryllinn Tesis. Síðan skrifuðu þeir saman og Amenábar leikstýrði Abre los ojos með Penelope Cruz, sem var endurgerð sem Vanilla Sky vestanhafs. Næst gerði Amenábar The Others með Nicole Kidman, sem sló rækilega í gegn á heimsvísu. Auk þess að skrifa og leikstýra semur Amenábar einnig tónlistina við myndir sínar og Gil. Nýjasta mynd hans, The Sea Inside (Mar Adentro), fær síðan einróma lof, vann Golden Globe sem besta erlenda myndin, er tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna og hreinlega rústaði spænsku Goya-verðlaununum um daginn. Fékk tólf verðlaun, meira en nokkur spænsk mynd hefur áður fengið. Þetta er sannsöguleg mynd um ævi Spánverjans Ramón Sampedro sem barðist í 30 ár fyrir því að mega binda enda á líf sitt með reisn. Hann er rúmliggjandi. Getur lítið annað gert en að horfa út um gluggann á hafið, þar sem hann starfaði áður sem sjómaður og þar sem hann lenti í slysi sem lamaði hann. Myndin fylgir sambandi hans við tvær konur. Lögfræðingurinn Júlía berst fyrir máli hans, að hann megi drepa sig ef hann vill. Nágrannakonan Rósa tekur í annan streng, hún vill telja Ramón trú um að lífið sé vert að lifa. Þrátt fyrir ósk hans að deyja, kenndi Ramón öllum sem urðu á vegi hans meiningu, tilgang og yndisleik lífsins. Þótt hann gæti ekki hreyft sig sjálfur hafði hann óútskýranlegan hæfileika til að hreyfa við öðrum. Javier Bardon leikur aðalhlutverkið og slær auðvitað í gegn eins og venjulega. The Sea Inside er sýnd í Regnboganum. Bíóumfjallanir, myndlist, leikhús, tónlist, allt um skemmtanalífið og margt fleira er að finna í Fókus sem fylgir DV á föstudögum.
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira