Innlent

Ellisif Tinna Víðisdóttir leiðir endurskipulagningu á Ratsjárstofnun

Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðuneytið MYND/365

Utanríkisráðherra hefur falið Ellisif Tinnu Víðisdóttur að leiða yfirfærslu á verkefnum og endurskipulagningu á starfi Ratsjárstofnunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Ellisif mun starfa með starfshópi utanríkisráðuneytisins að breytingunum. Hún hefur gegnt starfi aðstoðarlögreglustjóra á Suðurnesjum en hefur nú fengið tímabundið leyfi frá störfum.

Þá kemur einnig fram í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að á næstu vikum muni ráðherra leggja fram í ríkisstjórn og á Alþingi furmvarp til laga um verkefni Ratsjárstofnunar. Staða forstjóra nýrrar stofnunar verður síðan auglýst í kjölfar afgreiðslu frumvarpsins frá Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×