Lífið

Hannar sólgleraugu

Victoria Beckham Sólgleraugu undir hennar nafni eru væntanleg í verslanir Harrods í Bretlandi á næstunni.
Victoria Beckham Sólgleraugu undir hennar nafni eru væntanleg í verslanir Harrods í Bretlandi á næstunni. MYND/Gettyimages

Tískumógúllinn Victoria Beckham er búin að hanna sólgleraugnalínu undir sínu eigin nafni sem mun fara í sölu í lok júlí í verslunum Harrods í Bretlandi.

Victoria er þekkt fyrir að láta vart sjá sig án þess að þess að skýla sér á bak við sólgleraugu og segir hún að þau séu uppáhaldsfylgihlutur sinn. Victoria segist hafa tekið mið af tískunni á árunum 1940-1980 og eru því öll sólgleraugun í línunni í stærri kantinum.

Victoria hefur áður látið til sín taka í hönnunarbransanum en hún hannar sína eigin línu af gallabuxum fyrir bandaríska fatamerkið Rock and Republic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.