Lífið

Eddie og Mel B nýtt par

Sögusagnir eru uppi í Hollywood þess efnis að fyrrverandi kryddstúlkan Melanie Brown og gamanleikarinn Eddie Murphy séu nýtt par. Murphy skildi á dögunum við eiginkonu sína Nicole Mitchell, en þau eiga saman sex börn. Munu skötuhjúin vera í leynilegu ástarsambandi og eru að sögn vina mjög hamingjusöm. Mel B hefur lítið verið í sviðsljósinu undanfarin ár og hefur sólóferill hennar ekki gengið sem skildi. Þessa dagana er hún að láta reyna á leikhæfileika sína í Bandaríkjunum og svo er fyrirhuguð endurkoma stallsystranna í hljómsveitinni Spice Girls á næstunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.