Lífið

101 bekkur í póstnúmeri 101

Unnur malín Sigurðardóttir  Bekkir á 101 svæðinu snúa oft ekki rétt.
Unnur malín Sigurðardóttir Bekkir á 101 svæðinu snúa oft ekki rétt. MYND/Hörður

Unnur Malin Sigurðardóttir er nýútskrifuð af myndlistarbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, en í lokaverkefni sínu útbjó hún risastórt plakat sem sýnir myndir af 101 bekk á 101-svæðinu í Reykjavík.

"Ég fékk þessa hugmynd einn daginn þegar ég veitti því eftirtekt að bekkir eru tvist og bast um bæinn, án þess að nokkur sitji á þeim og svo eru þeir á hinum fáránlegustu stöðum. Til að mynda er fullt af svona bekkjum við sjóinn á 101-svæðinu og þegar hvasst er í veðri, eins og algengt er hér á landi, gusast sjórinn yfir þá sem bekkina verma og jafnvel sjávarþang," segir Unnur Malín og hlær.

Bekkirnir í miðbæ Reykjavíkur eru merkilega margir og forvitnilegt að sjá þá samankomna á einu veggspjaldi.

"Þá vakti það einnig athygli mína að bekkir á 101-svæðinu snúa oft ekki rétt, þeir snúa frá því útsýni sem nánasta umhverfi hefur annars upp á að bjóða".

Plakatið verður til sölu í bókabúðinni Iðu í Austurstræti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.