Lífið

Siglt á ný pöbbamið

Gengið á milli bara Zeno og José segja pöbbaröltið góða leið til þess að kynnast nýju fólki og bjóða alla velkomna. Þeir hafa verið að hengja þessi plaköt út um allan bæ til þess að auglýsa uppátækið sem vakið hefur lukku.
Gengið á milli bara Zeno og José segja pöbbaröltið góða leið til þess að kynnast nýju fólki og bjóða alla velkomna. Þeir hafa verið að hengja þessi plaköt út um allan bæ til þess að auglýsa uppátækið sem vakið hefur lukku. MYND/Hörður

Nýlega var farið að bjóða upp á skipulagt pöbbarölt um helgar í Reykjavík. Það er hinn 25 ára gamli Zeno Keilhacher sem stendur fyrir uppátækinu en honum til halds og traust er Spánverjinn Jose Rodriguez og fleiri útlendingar koma reyndar einnig við sögu.

Pöbbaröltið fer þannig fram að áhugasamir mæta í hvalaskoðunarskipið Hafsúluna sem liggur við Reykjavíkurhöfn kl. 22 á föstudags- og laugardagskvöldum. Þar greiða menn 2500 krónur en innifalið í því er klukkustundar ótakmörkuð drykkja á bátnum, þaðan er farið á bar þar sem boðið er upp á skot, síðan er haldið á annan bar þar sem einnig er boðið upp á skot og svo er endað á dansstað þar sem aðgangseyrir er greiddur fyrir þáttakendur og þeim boðið upp á kokkteil.

"Stuðið byrjar svo seint hér í Reykjavík og því er þetta kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja byrja kvöldið aðeins fyrr og kynnast nýju fólki," segir Zeno sem er hálfur Þjóðverji og hálfur Argentínumaður. Allt sitt líf hefur hann verið á faraldsfæti en hann kom fyrst til Íslands fyrir mánuði síðan. Eftir vikuvinnu á fiskiskipi sá hann viðskiptatækifæri í því að bjóða upp á pöbbarölt í höfuðborginni og hrinti hugmyndinni í framkvæmd.

Um fjörutíu manns, bæði Íslendingar og útlendingar, hafa að meðaltali mætt í hvert pöbbarölt en enn sem komið er þarf fólk ekki að panta pláss heldur bara að mæta á staðinn. "Sumir Íslendingar hafa verið með fordóma gagnvart þessu, en þeir sem hafa látið slag standa og komið með okkur hefur öllum fundist þetta mun skemmtilegra en þá hafði grunað," segir Zeno rámum rómi eftir mikið stuð um síðustu helgi. "Við pössum upp á það að engum í hópnum leiðist og að allir skemmti sér vel." Hann bendir á að þrátt fyrir að fólk geti drukkið eins mikið og það vilji fyrsta klukkutímann þá er ekki um stífa drykkju að ræða heldur nýta menn frekar tímann í það að heilsa upp á hvorn annan og þannig hefur hópurinn náð að hristast saman áður en farið er á skemmtistaðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.