Krefst skýringa á orðum borgarstjóra um Framsókn 3. apríl 2008 16:19
Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, ítrekaði á borgarráðsfundi í dag spurningar sínar til Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra varðandi ummæli borgarstjóra um Framsóknarflokkinn og meinta þjónkun hans við verktaka og auðmenn í borginni. Ummæli lét borgarstjóri falla í kvöldfréttum Sjónvarps á mánudag í frétt um vanda miðborgarinnar. Orðrétt sagði borgarstjóri: „Það hafa orðið þau umskipti í borginni að í fyrsta skipti í langan tíma er sá flokkur sem lengst hefur gengið í þjónustu við verktaka og auðmenn, Framsóknarflokkurinn ekki í meirihluta í Reykjavík. Og ég held að þess muni sjást stað í skipulagsmálunum og uppbyggingunni þar að við erum að gæta hagsmuna borgarbúa en ekki einhverra tiltekinna sérhagsmunahópa eða flokksmanna, eða verktaka eða annara sem (hafa) mikla umsýslu og fé undir höndum." Óskar spurði borgarstjóra út í málið á borgarstjórnarfundi á þriðjudag en borgarstjóri svaraði ekki fyrirspurninni þegar hún var lögð fram. Hann lét hins vegar þau orð falla síðar á fundinum að ummælin beindust ekki að Óskari heldur Framsóknarflokknum. Við það sætti Óskar sig ekki og krefst þess að borgarstjóri rökstyðji þær aðdróttanir sem í orðum hans liggi og leggi fram sannanir máli sínu til stuðnings. „Það á ekki að líðast í borgarstjórn Reykjavíkur að flokkar jafnt sem borgarfulltrúar þurfi að sitja undir órökstuddum fullyrðingum um meinta spillingu og sviksemi við borgarbúa. Ég krefst rökstuðnings borgarstjóra og sannana fyrir þessum ummælum, eða hann dragi ummæli sín til baka og biðjist afsökunar," segir í tilkynningu Óskars til fjölmiðla.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Fleiri fréttir Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Sjá meira