Húsvíkingar funda um álver á Bakka 3. apríl 2008 23:00 Bergur Elías Ágústsson
Alcoa mun síðar í þessum mánuði leggja fram hjá Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka við Húsavík með um 250.000 tonna framleiðslugetu á ári. Þetta var meðal þess sem kom fram á fjölmennum borgarafundi sem sveitarfélagið Norðurþing stóð fyrir á Húsavík í kvöld. Á fundinum kynntu fulltrúar Norðurþings, Landsnets, Landsvirkjunar, HRV og Alcoa undirbúning og stöðu mála varðandi fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík. Í máli Bergs Elíasar Ágústssonar, sveitarstjóra Norðurþings, kom fram að undirbúningsvinna fyrir álver á Bakka sé í fullum gangi. Meðal annars sé nýtt svæðisskipulag vegna fyrirhugaðrar nýtingar háhitasvæða í Þingeyjarsýslum í höfn og hafi verið samþykkt af viðkomandi sveitarstjórnum og staðfest af umhverfisráðherra. Í skipulaginu er meðal annars fjallað um verndun og nýtingu háhitasvæða og háspennulínur á öllu skipulagssvæðinu. Forhönnun og frumkostnaðaráætlun vegna stækkunar Húsavíkurhafnar er lokið. Siglingamálastofnun vinnur nú að gerð hafnarlíkans fyrir höfnina. Hjá sveitarfélaginu er nú meðal annars unnið að nauðsynlegum breytingum á staðsetningu iðnaðarlóða í aðalskipulagi og í sumar verður unnið að fornleifarannsóknum á Bakka. Bergur Elías dró saman helstu niðurstöður fundarins í lokin og sagði þá meðal annars "Hér voru kynnt ný og mikilvæg skref í þá átt að nýta auðlindir Norðausturlands til heilla fyrir íbúa fjórðungsins og landsins alls. Nýtt álver á Bakka verður kærkomin ný undirstaða fyrir atvinnulíf á svæðinu og mikilvæg viðbót í íslenskt efnahagslíf. Álver á Bakka myndi skapa 600 - 700 störf á Norðurlandi, um 1000 störf á landinu öllu og skapa umtalsverð útflutningsverðmæti fyrir þjóðarbúið."
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira