Innlent

DNA-niðurstöður í vikulok

Líklegt er að niðurstaða úr rannsókn á lífssýnum (DNA) sem send voru til Noregs, vegna rannsóknar á hvarfi konu sunnudaginn 4. júlí sl. og hefur verið í fréttum undanfarið, berist í lok þessarar viku. Jafnvel hafði verið vonast eftir að niðurstöðurnar bærust í dag en svo verður ekki.                                        Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var reynt að þrífa burt blóð í íbúð mannsins sem nú situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að eiga þátt í hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, áður en rannsókn lögreglu hófst. „Við erum náttúrlega bara að vinna að okkar rannsókn,“ segir Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Reykjavík, í samtali við Fréttablaðið í morgun. Hann vildi hvorki játa því né neita hvort sést hafi til mannsins við grunsamlega iðju á sunnudaginn fyrir rúmri viku, daginn áður en tilkynnt var um hvarf konunnar. Heimildir herma að þá hafi sést til mannsins við heimili hans í Stórholti þar sem hann burðaðist með eitthvað fyrirferðarmikið og innpakkað og kom fyrir í jeppabifreið sinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×