Innlent

Smáskjálftahrina í Fagradalsfjalli

Smáskjálftahrina hefur staðið yfir í Fagradalsfjalli við Grindavík frá því á sunnudag. Hjá skjálftavakt Veðurstofunnar fengust þær upplýsingar að flestir skjálftanna hafi verið í kringum eitt stig á Richter en þeir stærstu í kringum tvo á Richter. Smáskjálftar eru algengir á þessum slóðum en Veðurstofu hafa ekki borist upplýsingar um að fólk hafi orðið mikið vart við þá að þessu sinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×