Innlent

Málum blandið mannshvarf

Konan sem leitað hefur verið að frá því á mánudaginn fyrir rúmri viku er enn ófundin. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn, segir engar nýjar fregnir að hafa af rannsókn lögreglunnar á málinu. Hann segir að enn gefi menn sér ekkert um hvort konan sé lífs eða liðin. "En það liggur í augum uppi að þar sem við erum með mann í haldi, þá er þetta eitthvað málum blandið. Alla vega er þetta ekkert venjulegt mannshvarf," segir hann. Síðast er vitað um ferðir konunnar, sem er 33 ára frá Indónesíu, sunnudaginn 4. júlí, en tilkynnt var um hvarf hennar 5. júlí. Fyrrum sambýlismaður konunnar og barnsfaðir er í gæsluvarðhaldi, en blóð fannst í íbúð hans og bíl sem þykir benda til að voveiflegir atburðir hafi átt sér stað. Tæknideild lögreglunnar hefur rannsakað þrjá bíla vegna hvarfs konunnar, auk þess að rannsaka íbúð mannsins. Beðið er niðurstöðu DNA-greiningar á blóðinu sem fannst, en hún fer fram í Noregi. Líklegt þykir að þær upplýsingar skili sér í dag. Sjónarvottur ber að maðurinn hafi sést færa þunga byrði í bíl sinn daginn áður en tilkynnt var um hvarf konunnar, en það hefur ekki fengist staðfest hjá lögreglu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×