Vilja Náttúruminjasafn Íslands í Perluna 16. febrúar 2012 21:04 Samtökin hvetja mennta- og menningarmálaráðherra og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að gaumgæfa vel hugmyndir um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands.
Fimm félagasamtök á sviði náttúru- og umhverfisverndar og fagfélög kennara hafa sent stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og mennta- og menningarmálaráðherra áskorun vegna hugmynda um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands. Að áskoruninni standa Hið íslenska náttúrufræðifélag, Landvernd, Samlíf, ásamt Félögum náttúrufræði- og raungreinakennara. Samtökin hvetja mennta- og menningarmálaráðherra og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að gaumgæfa vel hugmyndir um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands. Í áskoruninni segir að „Náttúruminjasafn Íslands sé lögum samkvæmt eitt þriggja höfuðsafna þjóðarinnar og að það eigi að gegna lykilhlutverki í kynningu og fræðslu um náttúru Íslands." Félögin segja að safnið hafi verið hrakólum síðustu misseri og að það hafi búið við óviðunandi aðstæður áratugum saman. „Í ljósi þess að Íslendingar byggja atvinnu sína og líf á náttúru landsins í mjög ríkum mæli, auk þess sem langflestir erlendir ferðamenn sækja landið heim vegna náttúrunnar, skiptir öllu máli að bjóða upp á vandað höfuðsafn um náttúru landsins sem vel er í sveit sett og sómi er að." Hægt er að lesa áskorunina hér fyrir neðan: Undirrituð samtök hvetja stjórn Orkuveitu Reykjavíkur eindregið til þess að gaumgæfa vel hugmyndir um nýtingu Perlunnar undir starfsemi Náttúruminjasafns Íslands í því söluferli sem nú stendur yfir á húsnæðinu í Öskjuhlíðinni. Náttúruminjasafn Íslands er lögum samkvæmt eitt þriggja höfuðsafna þjóðarinnar og á að gegna lykilhlutverki í kynningu og fræðslu um náttúru Íslands. Safnið hefur verið á hrakhólum og búið við óviðunandi aðstæður svo áratugum skiptir. Nú er svo komið að það á engan samastað fyrir sýningastarfsemi sína og safnmunir eru geymdir ofan í kössum. Veglegt höfuðsafn í náttúrufræðum er stolt hverrar velstæðrar þjóðar og dýrmætur fróðleiksbrunnur fyrir þegna og gesti viðkomandi lands. Í ljósi þess að Íslendingar byggja atvinnu sína og líf á náttúru landsins í mjög ríkum mæli, auk þess sem langflestir erlendir ferðamenn sækja landið heim vegna náttúrunnar, skiptir öllu máli að bjóða upp á vandað höfuðsafn um náttúru landsins sem vel er í sveit sett og sómi er að.Hið íslenska náttúrufræðifélagÁrni Hjartarson formaðurLandverndGuðmundur Hörður Guðmundsson formaðurSamlíf - Samtök líffræðikennaraEster Ýr Jónsdóttir formaðurFélag náttúrufræðikennara á grunnskólastigiJón Pétur Zimsen formaðurFélag raungreinakennaraValgerður Þ.E. Guðjónsdóttir formaður
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira