"Forsetinn á ekki að tala í gátum" 16. febrúar 2012 19:00
Það er ókurteisi af hálfu forsetans að gefa það ekki afdráttarlaust upp hvort hann ætli að sækjast eftir endurkjöri. Forsetinn eigi ekki að tala í gátum segir þingmaður Samfylkingarinnar. Ólafur Ragnar Grímsson gaf það í skyn í nýársávarp sínu að hann ætli sér ekki að sækjast eftir endurkjöri þegar hann lýkur sínu fjórða kjörtímabili í sumar. Mörgum þótti sem að forsetinn hefði þó ekki útilokað það og hefur fjöldi fólks skorað á hann að gefa áfram kost á sér. Þá sýnir nýleg könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins að rétt rúmur helmingur þjóðarinnar vill að hann sækist eftir endurkjöri. Á þeim eina og hálfa mánuði sem að liðinn er frá nýársávarpi forsetans hefur fréttastofa ítrekað reynt að fá við hann viðtal og fá hann til að svara því hvort að til greina komi að hann bjóði sig fram aftur. Hann hefur þó ekki orðið við þeim óskum. „Það er náttúrulega bara ókurteisi að vera ekki búinn að skýra það á einum og hálfum mánuði hvað hann átti við í sínu nýársávarpi. Fólk er búið að vera velta þessu fyrir sér síðan þá. Auðvitað á forseti sem er í tengslum við sína þjóð að útskýra strax ef það er einhver vafi leikur á hvað hann átti við," sagði Róbert Marshall, varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Þá segir Róbert aðra frambjóðendur mögulega farna að setja sig í stellingar. „Það skiptir auðvitað máli hvort að þeir eru að fara að etja kappi við sitjandi forseta eða ekki. Þar að auki ætlum við mögulega að fara með tillögur stjórnlagaráðs í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða þessum kosningum," sagði Róbert. En Ólafur gefur áfram kost á sér þá er óvíst hvaða áhrif það hefur og hvort að kosningar verði. Róbert segir mikilvægt að Ólafur gefi það afdráttarlaust út hvort að hann ætli að sækjast eftir endurkjöri. „Það er heppilegra fyrir alla að hann útskýri hvað hann átti við. Forseti þjóðarinnar á ekki að tala í gátum," sagði Róbert.
Mest lesið Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Erlent Fleiri fréttir „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Sjá meira