Vinstri sveiflan mestu tíðindin 27. apríl 2009 04:30 Versta útkoma Sjálfstæðisflokks í sögunni er hin hliðin á peningi vinstri sveiflunnar. Fréttablaðið / gva
Það að vinstriflokkarnir séu með meirihluta á þingi fyrsta sinn er stærsta fréttin eftir kosningar helgarinnar. Þetta er mat Gunnars Helga Kristinssonar stjórnmálafræðings. „Þessi tilfærsla á fylgi yfir á vinstriflokkana er í raun uppgjör kjósenda við bankahrunið," segir Gunnar Helgi. „Og helsta niðurstaða númer tvö er síðan spegilmynd af þessari: Versta útkoma Sjálfstæðisflokksins frá upphafi." Sjálfstæðisflokkurinn er minni en nokkru sinni fyrr; með einungis 23,7 prósent. Næstminnst hefur hann fengið 27,2 prósent árið 1987, en þá hafði Albert Guðmundsson klofið sig úr flokknum og stofnað Borgaraflokkinn sem fékk nokkuð fylgi. Meginsigurverar kosninganna eru Vinstri græn og Borgarahreyfingin, segir Gunnar Helgi. Bæði framboðin auki fylgi sitt um ríflega sjö prósentustig, annað raunar úr engu. Samfylkingin megi vissulega vel við una og hafi fengið fína kosningu en þó sé sigur hennar einkum fólginn í því að vera orðinn stærsti flokkur landsins. Framsóknarflokkurinn vinnur á í fyrsta sinn síðan 1995, sem hlýtur að vera gleðiefni fyrir þá, segir Gunnar Helgi. „En það er samt langt frá því að flokkurinn sé búinn að ná sér." Þá segir Gunnar Helgi einnig athyglisvert hversu skýrt kjósendur virðast hafa svarað kallinu um endurnýjun. Mikil endurnýjun verði á þingliðinu, sem sé einkum forvitnilegt í því ljósi að mikil endurnýjun hafi einnig átt sér stað í kosningunum fyrir tveimur árum. Nú sé sú staða því uppi í fyrsta sinn að einungis lítill hluti þingmanna hafi þingreynslu sem eitthvað kveður að. Enn fremur sé sterk útkoma kvenna merkileg. Staða kvenna á Alþingi sé nú með því besta sem gerist í heiminum. Gunnar Helgi bendir jafnframt á að kjósendur virðist hafa uppgötvað útstrikanir sem tæki til að refsa þingmönnum sem ekki þykja hafa staðið sig nægilega vel. Hann sér ekki fram á annað en að sú þróun haldi áfram. - sh
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira