Innlent

Þingmenn VG elstir - framsóknarmenn yngstir

Vinstrihreyfingin - grænt framboð er með elsta þingflokkinn þegar meðalaldur þeirra þingmanna sem nú taka sæti á Alþingi er skoðaður. Framsóknarmenn hafa á að skipa yngsta þingmannahópnum en hjá þeim er meðalaldurinn 39,2 ár.

Meðalaldur þingmanna VG er 50,2 ár og er Jón Bjarnason þeirra elstur, fæddur 1943. Raunar hafa þingmenn VG á að skipa yngsta þingmanni Alþingis en Ásmundur Einar Daðason togar meðalaldurinn töluvert niður þar sem hann er fæddur árið 1982 og er því 27 ára gamall.

Þingmenn Samfylkingarinnar eru 48,7 ára að meðaltali og þar er Jóhanna Sigurðardóttir aldursforseti flokksins og raunar Alþingis í heild. Unglamb Samfylkingarinner síðan Katrín Júlíusdóttir, fædd árið 1974.

Sjálfstæðismenn eru 48,1 árs gamlir að meðaltali og þar eru félagarnir Árni Johnsen og Pétur Blöndal elstir, 65 ára gamlir. Yngsti þingmaðurinn er Unnur Brá Konráðsdóttir, 35 ára gömul.

Fjórir þingmenn Borgarahreyfingarinnar eru 48,3 ára að meðaltali og þar er leikstjórinn Þráinn Bertelssonelstur, 65 ára eins og Árni Johnsen og Pétur Blöndal. Yngst er Margrét Tryggvadóttir, fædd árið 1972.

Unglömb Alþingis eru síðan Framsóknarmenn en þar á bæ er meðalaldurinn 39,2 ár og munar því tæpum tíu árum á þeim og næstyngsta flokknum. Aldurisforsetarnir eru Siv Friðleifsdóttir og Sigurður Ingi Jónsson, fædd árið 1962. Yngstur er Birkir Jón Jónsson fæddur árið 1979 en hann tók sæti á Alþingi árið 2003. Aðeins Siv hefur setið lengur en hann.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×