Ramsey búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Juve Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. febrúar 2019 19:08 Ramsey í leik með Arsenal. vísir/getty
Aaron Ramsey er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Ítalíumeistara Juventus. Fjölmiðlar á Englandi greindu frá þessu nú síðdegis og Juventus staðfesti svo komu miðjumannsins í kvöld. Ramsey mun fara til Ítalíu í sumar þegar félagsskiptaglugginn opnar á ný og samningur hans við Arsenal rennur út. Því þarf Juventus ekki að borga krónu fyrir að fá Walesverjann. Juventus mun þó ekki spara neitt á því að bæta Ramsey í hópinn, því samkvæmt fréttum Sky Sports og BBC mun hann fá 400 þúsund pund á viku í laun sem gerir hann að launahæsta breska leikmanni sögunnar. Það eru hins vegar ekki allir sammála um þetta því Gabriele Marcotti hjá ESPN segir Ramsey ekki fá meira en 250 þúsund pund á viku.Ufficiale | @aaronramsey , bianconero in estate! #SeeYouAaron https://t.co/coENzNTLRCpic.twitter.com/TR8VbjEFMo — JuventusFC (@juventusfc) February 11, 2019 Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Juventus nær sér í leikmenn úr stærstu liðunum frítt, Andrea Pirlo, Dani Alves og Paul Pogba eru dæmi um leikmenn sem komu til Ítalíu undir svipuðum kringumstæðum. Ramsey hefur verið síðustu 11 ár hjá Arsenal en viðræður um framlengingu við Skytturnar runnu út í sandinn fyrr í vetur. Hann var einnig í viðræðum við Barcelona og Paris Saint-Germain en valdi að fara til Juventus.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Fótbolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira