Innlent

Fékk aðstoð og fór úr kulnun í kraft

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ung kona sem fékk alvarleg einkenni kulnunar í lífi og starfi segir að það hafi í raun gefið sér tækifæri til að snúa við blaðinu og breyta um lífsstíl. Alltof algengt sé að fólk ætli sér alltof mikið og brenni síðan út.

Talið er að ríflega einn af hverjum tíu starfandi einstaklingum upplifi kulnun hér á landi en heildarrannsókn hefur ekki verið gerð á algengi þess. Margir sem finna fyrir slíkum einkennum fara í Virk en um sjötíu til áttatíu prósent þeirra sem fara í endurhæfingu ná sér aftur á strik.

Anna Classen er þrjátíu og þriggja ára danskennari og hefur alltaf haft mörg járn í eldinum. Í desember í fyrra var hún í tveimur störfum og tók að sér fjölda verkefna þegar eitthvað gaf sig.

„Rosaleg þreyta, minnisleysi, ég var uppgefin og hafði ekki löngun til að gera neitt. Það er svo óþægilegt því manni langaði að njóta lífsins en hafði ekki löngun í neitt. Og svo eru ýmis andleg áföll sem komu í gegnum tíðina sem fóru að leita á mig. Ef maður dílar ekki við þau þá safnast þau upp og þá „krassaru“,“ segir Anna

Hún lýsir sér sem hefðbundinni íslenskri konu og segir að hún eigi góða að en hún hafi líka fengið góða aðstoð hjá Virk og til Hugarafli. Hún tók ráðleggingum sérfræðingana eins og að minnka vinnuna og passaði upp á svefninn og hefur sjaldan verið á eins góðum stað.

„Maður þarf að passa sig að vera ekki alltaf með notification á eða vera alltaf í símanum, maður þarf að leggja hann frá sér,“ segir Anna.

Anna segir hinsvegar ýmislegt jákvætt koma út úr þessu. „Það er hægt að byggja sig upp úr svona veikindum þannig að maður fari úr kulnun í kraft,“ segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×