Hátt í áttatíu vændiskonur í Reykjavík eru með virka auglýsingu á vændissölusíðu í dag Nadine Guðrún Yaghi skrifar 26. júlí 2019 19:45
Hátt í áttatíu vændiskonur í Reykjavík eru með virka auglýsingu á vændissölusíðu í dag. Þær voru um þrjátíu um áramótin. Konurnar segjast velja Reykjavík þar sem hærra verð fáist fyrir vændi hér en víða í Evrópu og þær upplifi sig öruggari. Frá áramótum hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgst grannt með vefsíðu þar sem vændi er auglýst. Eins og fréttastofa fjallaði nýlega um hefur lögreglan yfirheyrt um fimmtíu meinta vændiskaupendur á árinu og leikur grunur á að um mansal sé að ræða í einhverjum málanna. Orðið hefur markverð aukning í sölu vændis hér á landi á síðustu mánuðum. Erla Dögg Gunnarsdóttir, lögreglufulltrúi hjá mansalsteymi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að um áramótin hafi þrjátíu einstaklingar, 98 prósent konur, verið með virka vændisauglýsingu vefsíðunni. Eins og staðan er í dag eru hátt í 80 vændiskonur og einn karl, með virka auglýsingu á síðunni, það er hafa uppfært auglýsinguna á síðastliðnum mánuði. Vændiskonurnar í málunum sem lögreglan hefur rannsakað eru flestar frá Austur-Evrópu og hefur lögreglan rætt við tugi þeirra frá áramótum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru helst tvær ástæður sem konurnar nefna fyrir því að þær velji að stunda vændi á Íslandi. Annars vegar hagnaður, en verð á vændi virðist dýrara hér en víða annars staðar. Og hinsvegar öryggi, en þær segjast upplifa sig öruggari hér á landi.
Reykjavík Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira