Innlent

Hátt í níu þúsund ábendingar til Strætó á þremur árum

Sylvía Hall skrifar
Kvartanirnar voru flestar árið 2016.
Kvartanirnar voru flestar árið 2016. Vísir/Vilhelm
Í svari Strætó við fyrirspurn Kolbrúnar Baldursdóttir, borgarfulltrúa Flokks fólksins, kemur fram að fyrirtækinu hafi borist nærri níu þúsund ábendingar á árunum 2016 til 2018 vegna framkomu og aksturslags. Í bókun flokksins kemur fram að fjöldinn hafi komið verulega á óvart.  

Flestar ábendingarnar snúa að aksturslagi, framkomu vagnstjóra og tímasetningum. Notendur geta sent inn ábendingar í gegnum ábendingarform á heimasíðu, í gegnum Facebook-síðu fyrirtækisins eða með símtali. Einnig annast eftirlitsmenn gæðaúttektir.

Kolbrún segir eitthvað mikið vera að í fyrirtækinu varðandi þjónustu við farþega. Vísir/Vilhelm

Óeðlilegur fjöldi ábendinga að mati borgarfulltrúa 

Kolbrún segist sjálf hafa átt von á um það bil hundrað til tvö hundruð ábendingum en ekki á þriðja þúsund og yfir. Flestar voru ábendingarnar árið 2016 eða 3.654 talsins. Þeim fækkaði svo niður í 2.536 árið 2017 en árið 2018 hafði þeim fjölgað á ný um rúmlega tvö hundruð.

„Þetta er afar sérstakt. Flokkur fólksins spyr hvort kafað hafi verið ofan í þessu mál og unnið að því að fækka ábendingum verulega,“ segir í bókuninni. Þá er spurt hvort flestar kvartanir tengist tímasetningum eða hvort það snúi meira að háttsemi vagnstjóra.

„Niðurstaðan í huga borgarfulltrúa Flokks fólksins þegar hann hefur séð þetta svar er að það er eitthvað mikið að í þessu fyrirtæki þegar kemur að þjónustu við farþega,“ skrifar Kolbrún og bætir við að slíkur fjöldi ábendinga sé ekki eðlilegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×