Innlent

Líneik Anna: Verk­efnið að tryggja öllum byggðum tæki­færi til þróunar

Atli Ísleifsson skrifar
Líneik Anna Sævarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins.
Líneik Anna Sævarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins. vísir/vilhelm
Líneik Anna Sævarsdóttir, þingkona Framsóknarflokkur, segir það vera verkefni þings að tryggja öllum byggðum landsins tækifæri til þróunar.

Þetta sagði Líneik Anna í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld þar sem hún fór meðal annars yfir nýtingu á landinu, eignarhald á jörðum og nauðsyn þess að rækta samstarf við bændur.

Hún sagði áskorunina vera að flétta saman sem flest markmið uppbyggingar, verndar og sjálfbærrar nýtingar - við landnotkun, landgræðslu, skógrækt og landvörslu. Samvinna skili samfélagslegum ávinningi langt umfram það sem gerist ef hver vinnur í sínu horni.

Samfélagsleg verðmæti

Þingmaðurinn spurði svo í ræðu sinni hvort allir geti ekki verið sammála um að samfélagsleg verðmæti felist í byggð um land allt.

„Verkefni okkar hér er að tryggja öllum byggðum tækifæri til þróunar. Það gerum við meðal annars með skýrri sýn á uppbyggingu samgangna, fjarskipta og dreifikerfis raforku.

Í vetur höfum við, undir dyggri forystu hæstvirts samgöngu og sveitarstjórnarráðaherra Sigurðar Inga Jóhannssonar afgreitt samgönguáætlun sem boðar stórsókn í samgöngumálum og þá er að ljúka vinnu við fjarskiptastefnu þar sem markmiðið er að Ísland verði áfram í fremstu röð með trausta og örugga fjarkskiptainnviði.

Í samfélagi þar sem þjónusta er samþjöppuð á litlu svæði þarf að tryggja grunninnviði en líka jafnan flutningskostnað innanlands. Kostnaður við flutning -  á   raforku, -flutning á fólki, - við gagnaflutning um ljósleiðara, -  eða vöruflutninga til og frá markaði má ekki vera hindrun fyrir samkeppnihæfni byggðarlaga.  Dæmi um lausnir á þessum vanda sem eru á dagskrá er eitt dreifikerfi raforku og sama verð til allra fyrir dreifingu orkunnar - og skoska leiðin í fluginu,“ sagði Líneik Anna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×