Innlent

Óháð fagráð verði skipað til að bregðast við #met­oo-málum

Atli Ísleifsson skrifar
Stýrihópurinn leggur meðal annars til að Stjórnarráðsdagurinn 2019 verði helgaður #metoo.
Stýrihópurinn leggur meðal annars til að Stjórnarráðsdagurinn 2019 verði helgaður #metoo. vísir/vilhelm
Sérstakur stýrihópur stjórnvalda um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi hefur lagt til að skipað verði óháð fagráð til að bregðast við tilkynningum og ábendingum um einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni eða ofbeldi innan Stjórnarráðs Íslands.

Skýrsla stýrihópsins um #metoo og Stjórnarráð Íslands sem vinnustað var kynnt í ríkisstjórn í morgun.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneyti segir að í skýrslunni komi fram að samkvæmt niðurstöðum kannana sé kynferðisleg áreitni ekki mjög algeng innan ráðuneytanna. Kannanir bendi þó til að þolendur áreitni séu hikandi við að kvarta formlega og þegar þeir gera það séu þeir ekki endilega sáttir við málsmeðferð.

„Í skýrslunni eru lagðar til eftirfarandi aðgerðir:

1. Skipað verði óháð fagráð, sem hafi það hlutverk að taka við, meta og fara með tilkynningar og ábendingar sem því berast um einelti, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni eða ofbeldi.

2. Endurskoðun á Stefnu og áætlun Stjórnarráðsins gegn einelti, kynferðislegri áreitni og kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi verði fram haldið og skerpt verði á verkferlum í tilfellum þar sem undirstofnanir leita ráða um málsmeðferð.

3. Stjórnarráðsdagurinn 2019 verði helgaður #metoo.

4. Gert verði átak í að efla fræðslu og umræðu til að byggja upp vinnustaðamenningu þar sem kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi fær ekki að líðast. Jafnréttisstofu verði falið að taka saman yfirlit yfir fræðsluefni sem þegar er til og að útbúa fræðslupakka til þriggja ára sem ráðuneytin geta nýtt sér. Þá verði Jafnréttisstofu falið að gera tillögu um bætta fræðslu fyrir nýliða innan Stjórnarráðsins.

5. Kannaður verði fýsileiki þess að útbúa Jafnréttisskref fyrir starfsemi vinnustaða, sambærileg Grænu skrefunum um vistvænan rekstur.

6. Ráðuneytin tryggi að jafnréttisfulltrúar hafi forsendur, burði og svigrúm til að sinna þeim mikilvægu verkefnum sem á borði þeirra eru.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×