Newcastle áfram eftir framlengingu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. janúar 2019 22:21 Joselu fagnar markinu sem kom Newcastle yfir í framlengingunni vísir/getty
Newcastle þurfti framlengingu til þess að vinna B-deildarlið Blackburn í endurteknum leik í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta. Sean Longstaff kom Newcastle yfir strax á fyrstu mínútu leiksins og Callum Roberts var búinn að tvöfalda forystuna á 22. mínútu. Heimamenn í Blackburn komu til baka með marki frá Adam Armstrong eftir um hálftíma leik og Darragh Lenihan jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Engin mörk komu í seinni hálfleik svo það þurfti að grípa til framlengingar. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks framlengingarinnar skoraði Joselu og kom Newcastle yfir og Ayoze Perez kláraði leikinn fyrir Newcastle í upphafi seinni hálfleiks framlengingarinnar. Endursýningar sýna að Joselu var rangstæður þegar hann kom Newcastle yfir en það var ekki notast við myndbandsdómgæslu í þessum leik og því stendur markið. Blackburn hafði ekki krafta í að koma til baka og er því úr leik. Newcastle mætir Watford í úrvalsdeildarslag í fjórðu umferðinni. C-deildarlið Shrewsbury Town er komið í fjórðu umferðina eftir endurkomu í seinni hálfleik gegn B-deildarliði Stoke. Josh Laurent skoraði sigurmarkið á 81. mínútu eftir að Stoke komst í 2-0 í fyrri hálfleik. Shrewsbury skoraði þrjú mörk á tíu mínútna kafla í seinni hálfleik og tryggði sig áfram. Shrewsbury mætir úrvalsdeildarliði Wolves í næstu umferð. Sheffield Wednesday vann sigur á Luton Town í Luton. Atdhe Nuhiu skoraði eina markið af stuttu færi strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks. Wednesday mætir bikarmeisturum Chelsea í fjórðu umferð.
Enski boltinn Mest lesið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Handbolti Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Ederson nálgast Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Sjá meira