Derby sló Southampton úr leik í vítaspyrnukeppni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. janúar 2019 22:34 Úrvalsdeildarliðabanarnir ættu ekki að eiga í miklum vandræðum með Accrington Stanley í næstu umferð vísir/getty
Frank Lampard og lærisveinar hans í Derby County halda áfram að slá út úrvalsdeildarlið í bikarkeppnum, liðið hafði betur gegn Southampton í vítaspyrnukeppni í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. Derby, sem sló Manchester United út úr deildarbikarnum, gerði 2-2 jafntefli við Southampton í fyrri leiknum og því varð að endurtaka leikinn. Leikurinn í kvöld fór fram í Southampton og endaði hann einnig 2-2 eftir venjulegan leiktíma. Öll mörk leiksins komu á 14 mínútna kafla í síðari hálfleik. Stuart Armstrong kom Southampton yfir á 68. mínútu og Nathan Redmond kom stöðunni í 2-0 tveimur mínútum síðar. Þá héldu margir að leikurinn væri búinn en leikmenn Derby gáfust ekki upp. Harry Wilson skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu á 76. mínútu. Á 82. mínútu jafnaði Martyn Waghorn svo leikinn eftir fyrirgjöf frá Wilson. Sigurmarkið kom ekki og því var farið í framlengingu. Þar kom ekkert mark heldur og grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Waghorn skoraði úr fyrstu spyrnunni fyrir Derby og James Ward-Prowse skoraði úr fyrstu spyrnu Southampton. Eftir að David Nugent skoraði skaut Nathan Redmond hins vegar hátt yfir og framhjá úr sinni spyrnu . Mason Mount hamraði í stöngina og inn. Næstu þrjár spyrnur fóru inn og því gat fyrirliðinn Richard Keogh tryggt Derby 5-3 sigur í vítaspyrnukeppninni ef hann skoraði úr síðustu spyrnunni. Hann gerði það af öryggi og Derby County vann leikinn. Derby mætir Accrington Stanley í fjórðu umferðinni en Southampton er úr leik.
Enski boltinn Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Fleiri fréttir Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Sjá meira