Skiptir Gylfa Sig út fyrir Aron Einar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2019 08:00 Oumar Niasse fagnar marki með Gylfa Þór Sigurðssyni. Hér eftir spilar Niasse með Aroni Einari í Cardiff. Getty/Mark Robinson
Oumar Niasse skipti um lið í ensku úrvalsdeildinni í gær en er engu að síður áfram hluti af Íslendingaliði. Everton samþykkti að lána Oumar Niasse til Cardiff City til loka tímabilsins. Hann fer því úr því að vera liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar í að vera liðsfélagi landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar. Oumar Niasse hefur aðeins fengið samtals 58 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og vildi ólmur komast til liðs þar sem hann fær að spila.BREAKING: Cardiff City agree loan deal for Everton striker Oumar Niasse https://t.co/d423EvxpRH — Cardiff City Online (@CardiffCityLive) January 16, 2019Senegalski framherjinn er fyrsti liðstyrkur Cardiff City í janúarglugganum. Liðið er ekki hætt að styrkja sóknina því Cardiff hefur einnig mikinn áhuga á argentínska framherjanum Emiliano Sala sem spilar með Nantes. Samkvæmt fréttum enskra miðla þá vildi Everton helst selja þennan 28 ára gamla leikmann en Cardiff tókst að sannfæra þá á Goodison Park um að lána hann frekar. Oumar Niasse kom til Everton frá Lokomotiv Moskvu árið 2016 og borgaði enska félagið 13,5 milljónir punda fyrir hann. Hann hefur hinsvegar ekki hækkað í verði hjá félaginu og er talið að Everton menn myndu sætta sig við 7 milljónir punda fyrir hann í dag. Oumar Niasse átti sitt besta tímabil með Everton í fyrra þegar hann skoraði 8 mörk í 22 deildarleikjum en félagið hefur áður lánað hann til Hull City þar sem hann skoraði 4 mörk í 17 leikjum tímabilið 2016-17.
Enski boltinn Mest lesið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Ederson nálgast Manchester United Enski boltinn Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Handbolti Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Sjá meira