Leeds tapaði stigum │Jón Daði og Birkir í byrjunarliði Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. janúar 2019 17:05 Njósnirnar hjálpuðu Bielsa ekki í þetta skipti vísir/getty
Topplið Leeds tapaði óvænt fyrir Stoke í ensku Championship deildinni í dag. Birkir Bjarnason og Jón Daði Böðvarsson voru báðir í byrjunarliðum liða sinna. Norwich minnkaði forystu Leeds á toppnum niður í eitt stig í gær en búist var við því að Leeds næði að auka muninn á ný þegar liðið sótti Stoke heim í dag. Stoke sat fyrir leikinn í 15. sæti deildarinnar. Það kom þó ekki upp á daginn. Sam Clucas kom Stoke yfir snemma í seinni hálfleik og staðan varð enn verri fyrir Leeds á 76. mínútu þegar Pontus Jansson var rekinn af velli með sitt annað gula spjald. Stoke náði að nýta sér liðsmuninn á 88. mínútu og virtist vera að gera út um leikinn þegar Joe Allen skoraði. Gestirnir náðu sárabótamarki seint í uppbótartíma þegar Ezgjan Alioski skoraði eftir hornspyrnu en það kom of seint, 2-1 sigur Stoke raunin. Í Birmingham var Birkir Bjarnason í byrjunarliði Aston Villa sem tók á móti Hull. Gestirnir komust yfir með tveimur mörkum frá Jarrod Bowen og Evandro en James Chester jafnaði fyrir Villa á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Tammy Abraham jafnaði leikinn fyrir Aston Villa á 64. mínútu og fleiri urðu mörkin ekki, niðurstaðan 2-2 jafntefli. Birkir var tekinn af velli þegar um korter var eftir af leiknum. Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Reading sem sótti Derby heim. Duane Holmes kom lærisveinum Frank Lampard yfir strax á þriðju mínútu leiksins og Harry Wilson tvöfaldaði forystuna undir lok fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik lagaði Sone Aluko stöðuna fyrir Reading en nær komust þeir ekki og er liðið því enn í fallsæti í deildinni.Úrslit dagsins: Aston Villa - Hull 2-2 Blackburn - Ipswich 2-0 Derby - Reading 2-1 Middlesbrough - Millwall 1-1 Nottingham Forest - Bristol City 0-1 QPR - Preston North End 1-4 Rotherham - Brentford 2-4 Sheffield Wednesday - Wigan 1-0 Stoke - Leeds 2-1 17:30 Swansea - Sheffield United
Enski boltinn Mest lesið „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Sjá meira