Guardiola segir sínum mönnum að hætta að horfa á leikjadagskrána hjá Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2019 08:30 Pep Guardiola. Getty/Shaun Botterill
Pep Guardiola stýrði Manchester City til sautjánda sigursins á tímabilinu í gær og liðið minnkaði því forskot Liverpool á toppnum í fjögur stig. Spænski stjórinn var að sjálfsögðu spurður út í Liverpool liðið á blaðamannafundi eftir leikinn. „Við getum ekkert gert neitt þegar kemur að leikjum Liverpool. Það eru bara þeirra leikir,“ sagði Pep Guardiola. Hann vill að hans menn einbeiti því bara að sínum leikjum. „Eina leiðin hjá okkur til að setja pressu á Liverpool er að sjá til þess að við fylgjum þeim og séum tilbúnir að nýta okkur það ef þeir misstíga sig,“ sagði Guardiola. „Ég segi mínum mönnum að hætta að horfa á leikjadagskrána hjá Liverpool. Það er best fyrir þá að gleyma þeim. Vanalega fara menn að tapa leikjum ef menn festast í því,“ sagði Guardiola en BBC segir frá.Pep Guardiola has told his Manchester City players to forget about looking at Liverpool's matches and focus on winning. "I don't have a magic ball to discover when they are going to lose points."https://t.co/SQ7N6HaIrZ — Anfield HQ (@AnfieldHQ) January 14, 2019„Það er ekki auðvelt að halda stöðugleika því við náðum ótrúlegum tölum á síðasta tímabili. Liverpool hefur staðið sig betur hingað til en það eina sem við getum gert er að klára okkar leiki. Við höfum talað um það margoft við okkar leikmenn að einbeita sér að því sem við getum stjórnað og það eru okkar leikir,“ sagði Guardiola. Liverpool og Manchester City virðast vera að slíta sig frá Tottenham og Chelsea og þetta verður væntanlega einvígi milli þeirra um Englandsmeistaratitilinn. „Það er orðið nokkuð ljóst ef við vinnum ekki þá verða þeir meistarar. Við verðum því að setja pressu á þá með því að vinna okkar leiki,“ sagði Guardiola. Næstu leikir liðanna eru um næstu helgi. Liverpool tekur á móti Crystal Palace á heimavelli á laugardaginn en Manchester City heimsækir Huddersfield Town á sunnudaginn.
Enski boltinn Mest lesið Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Fótbolti Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Fótbolti Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Íslenski boltinn Sjáðu rauða spjaldið og markið sem skaut Valsmönnum á toppinn Fótbolti Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Fótbolti Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Fótbolti Rashford mættur til Barcelona Fótbolti Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Fótbolti Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Fótbolti Fleiri fréttir Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Sjá meira