Emery vill Özil burt til þess að losa um fjármagn Anton Ingi Leifsson skrifar 15. janúar 2019 13:00 "Hérna er leiðin út, vinur.“ vísir/getty
Unai Emery, stjóri Arsenal, vill Mesut Özil burt frá félaginu til þess að geta fengið fjármuni til að kaupa aðra leikmenn til félagsins en Daily Mail greinir frá þessu. Özil hefur ekki verið í náðinni hjá Emery sem hefur gengið erfiðlega með Arsenal-liðið á útivelli undanfarnar vikur. Liðið tapaði gegn West Ham um helgina og hefur því einungis fengið tvö stig í síðustu fimm útileikjum. Þjóðverjinn var ekki í hópnum um helgina á meðan unglingurinn Eddie Nketiah var í hópnum. Í viðtali eftir leikinn var Emrey spurður út í valið en þá svaraði hann á þeim nótum að þeir leikmenn sem ættu skilið að vera valdir, væru valdir í hópinn. Það eru ekki margir sem eru tilbúnir til þess að borga Özil 350 þúsund á viku sem hann er með hjá Arsenal og erfitt er að lána hann til annarra liða vegan þess. Emery vill hins vegar fá hann burt svo hann geti skoðað aðra leikmenn. Arsenal hafði náð samkomulagi við Barcelona um að fá Denis Suarez en Börsungar eru ekki reiðubúnir að lána Suarez nema Arsenal sé tilbúið að kaupa hann í sumar. Því er Lundúnar-liðið ekki opið fyrir. Það lítur út fyrir að allt sé ekki með felldu í búningsherbergi Arsenal því eftir tapið gegn West Ham sagði varnarmaðurinn Sokratis Papastathopoulos að liðið vanti gæði á síðasta þriðjungnum. Fjölmiðlar tóku því þannig að hann var einfaldlega að segja að liðið vantaði Özil en varnarmaðurinn talaði um hversu góð færi liðið hefði komið sér í hefði síðasta sendingin verið betri en hún var. Það er einmitt sérgrein Özil.
Fótbolti Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira