Strætó lækkar aldursmörk fyrir eldriborgaraafslátt aftur í 67 ár Sigurður Mikael Jónsson skrifar 3. febrúar 2018 07:00 Stjórn Strætó bs. ákvað á fundi sínum í gær að færa aldursmörk fyrir eldriborgaraafslátt fyrirtækisins aftur niður í 67 ár úr 70 árum. Heiða Björg Hilmisdóttir, stjórnarformaður Strætó bs., segir að stjórnin hafi verið sammála um að breytingin væri sanngjörn og hún mun koma til framkvæmda strax. Vísir/Anton
Stjórn Strætó bs. ákvað á fundi sínum í gær að færa aldursmörk fyrir eldriborgaraafslátt fyrirtækisins aftur niður í 67 ár úr 70 árum. Heiða Björg Hilmisdóttir, stjórnarformaður Strætó bs., segir að stjórnin hafi verið sammála um að breytingin væri sanngjörn og hún mun koma til framkvæmda strax. Fréttablaðið fjallaði um misræmið í aldursmörkum í vikunni en það var árið 2011 sem viðmiðið fyrir eldriborgaraafslátt var hækkað úr 67 árum í 70. Þannig hefur það verið síðan í strætó á meðan aðrar aldurshækkanir hafa gengið til baka. Fólk á aldrinum 67-69 ára hefur því talist til eldri borgara víðast hvar annars staðar í þjóðfélaginu nema í strætó. Þá hefur misræmið skapað vandamál fyrir öryrkja sem teljast til eldri borgara við 67 ára aldur og hefðu því tæknilega séð átt að greiða fullt fargjald í þrjú ár til sjötugs. Stjórn Strætó skoðaði að lækka aldursmörkin aftur í 67 ár áður en gjaldskrá ársins 2018 var samþykkt en ákveðið var að fresta því þar sem stjórnin vildi vita hvað slík aðgerð myndi kosta. „Mér finnst alveg sjálfsagt að fólk verði eldri borgarar á sama aldri alls staðar og okkur fannst sjálfsagt að kippa þessu í lag og vonum að þetta verði til að fleiri nýti sér strætó.“ Heiða segir breytinguna einfalda allt og loka á þær glufur sem hækkunin myndaði á sínum tíma. Aðspurð hvort stjórnin hafi fengið upplýsingar um kostnaðinn við þessar breytingar segir Heiða að þær upplýsingar hafi fengist að ekki væri hægt að áætla það. „Við vitum ekki hvað fólk er gamalt sem kaupir fullorðinsmiða og það er ekki hægt að áætla kostnaðinn, að sama skapi eru engar tölur um hvað þessi breyting sparaði á sínum tíma. En við erum á því að þetta sé sanngjarnt.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ungur drengur fékk púður úr flugeldi í augað Innlent „Fasistinn“ og „kommúnistinn“ grófu stríðsöxina Erlent Íbúar grátandi og í miklu uppnámi yfir flutningi Kaffistofunnar Innlent Ungt fólk glími við offitu eftir einangrun í kjölfar Covid Innlent Viðreisn hafi tekið upp málflutning Miðflokksins Innlent Magnús Guðmundsson er látinn Innlent Ráðherra hvatti börn til þess að mótmæla bókstafakerfi Innlent Flestir vilja að störf sérstaks saksóknara verði rannsökuð Innlent Mæðgurnar svöruðu engu Innlent Hyggjast reisa fjörutíu íbúðir í raðhúsum í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir Ungt fólk glími við offitu eftir einangrun í kjölfar Covid Ungur drengur fékk púður úr flugeldi í augað Íbúar grátandi og í miklu uppnámi yfir flutningi Kaffistofunnar Viðreisn hafi tekið upp málflutning Miðflokksins Hernaðarstuðningur hækkar ekki og Rutte kunnugt um „íslenska öryggismódelið“ 80% nemenda á Laugarvatni eru í kór menntaskólans Ráðherra hvatti börn til þess að mótmæla bókstafakerfi Flestir vilja að störf sérstaks saksóknara verði rannsökuð Meira í varnarmál og heitar umræður í beinni Erlendum vasaþjófum vísað úr landi Stöðvuðu stækkun Sigöldustöðvar Kanna fýsileika landeldis á Bakka Hyggjast reisa fjörutíu íbúðir í raðhúsum í Breiðholti Vara við netsvikum í nafni Skattsins Tæp tvö ár fyrir smygl á tæpum tveimur kílóum af kókaíni Hafa áhyggjur af fjármögnun loftslagsaðgerða stjórnvalda Stöðvar framkvæmdir við nýja Kaffistofu Samhjálpar Öryrkjar fá nú síður gjafsókn Fjörðurinn orðinn tvöfalt stærri Sveinn Óskar leiðir listann áfram Foreldrar eigi líka að leggja símann frá sér Samgönguáætlun ekki afgreidd á haustþingi Spáir enn desembergosi Ný fjármögnunarleið að ryðja sér til rúms og friðaráætlun í Úkraínu gagnrýnd Margir skorað á Ingibjörgu í formanninn Játaði líkamsárás en sleppur í bili vegna tölvubréfs dómara Bílvelta og árekstur í hálkunni Vísbendingar um að færri unglingar drekki áfengi Ráðin bæjarritari í Hveragerði Vilja tryggja stöðu ungs fólks í prófkjöri Samfylkingarinnar Sjá meira