Innlent

Setti tólf krónur á getraunaseðilinn og vann sex milljónir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er ekki amalegt að leggja tólf krónur í að tippa og vinna rúmar sex milljónir.
Það er ekki amalegt að leggja tólf krónur í að tippa og vinna rúmar sex milljónir. vísir/vilhelm
Kona sem tippaði á Sunnudagsseðilinn í getraunum var heldur betur með hlutina á hreinu þegar hún tippaði á aðeins eina röð á netinu og borgaði tólf krónur fyrir.

Niðurstaðan var nefnilega þrettán réttir og vann konan tæpar 6,2 milljónir króna.

„Tipparinn glúrni býr í Reykjanesbæ en styður Val.  Íslenskar getraunir óska tipparanum til hamingju með vinninginn. Það er ljóst að ekki þarf að tippa fyrir háar upphæðir til að fá góðan vinning í getraunum,“ segir í tilkynningu frá Íslenskum getraunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×