Innlent

Búið að semja um myndun nýs meirihluta á Akranesi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sjálfstæðisflokkurinn var með hreinan meirihluta á Akranesi á síðasta kjörtímabili.
Sjálfstæðisflokkurinn var með hreinan meirihluta á Akranesi á síðasta kjörtímabili. Vísir/GVA
Samfylkingin og Framsókn og frjálsir á Akranesi hafa gengið frá málefnasamningi um myndun nýs meirihluta á Akranesi. Samningurinn verður lagður fyrir félagsmenn í kvöld. Sævar Freyr Þráinsson mun áfram verða bæjarstjóri sveitarfélagsins. Elsa Lára Arnarsdóttir oddviti Framsóknar og áháðra staðfestir þetta í samtali við Vísi.

„Framsókn og frjálsir og Samfylkingin eru búin að ganga frá samningi sín á milli um meirihlutasamstarf. Það eru félagsfundir hjá báðum félögunum klukkan átta í kvöld og þá verður samningurinn lagður fyrir félagsmenn. Þá kemur í ljós hvað verður.“

Kjörnir bæjarfulltrúar flokkanna á Akranesi hafa fundað saman síðustu daga. Búist er við að samningurinn verði undirritaður fljótlega.

„Við höfum verið í sambandi við okkar fólk og höfum landað málefnasamningi sem að við erum öll sátt við, mjög sátt við. Hann verður borinn undir félagsmenn í kvöld og ef samþykki fæst þá verður skrifað undir.“

Elsa segir að það sé vilji beggja flokka að Sævar Freyr verði áfram bæjarstjóri og það sé komið samkomulag um það við hann sjálfan.

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóriSkjáskot/Stöð2

Áhersla á fjölskyldur

Sjálfstæðisflokkurinn var í hreinum meirihluta á síðasta kjörtímabili og hlaut 41,4 prósent í kosningunum um síðustu helgi og missti því einn bæjarfulltrúa. Samfylkingin hlaut 31,2 prósent atkvæða og Framsóknarflokkurinn 21,8 prósent. 

Níu manns skipa bæjarstjórn á Akranesi. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn inn, Samfylkingin þrjá og Framsókn tvo. Miðflokkurinn hlaut aðeins 5,7 prósent atkvæða og náði ekki manni inn. Því var ljóst strax að mynda þyrfti nýjan meirihluta á Skaganum en Elsa Lára segir að umræðurnar síðustu daga hafi gengið mjög vel og flokkarnir náðu vel saman um stærstu málefnin.

„Við leggjum mjög mikla áherslu á Akranes sem fjölskylduvænt samfélag. Það er að horfa inn í menntamál, inn í dagvistunarmál, inn í velferðarmálin. Auk þess leggjum við mikla áherslu á atvinnumál því ef við eigum að eiga inni fyrir uppbyggingu og sækja fram í velferðar- og fjölskyldumálum þá þarf atvinnan að vera til staðar.“





Bæjarfulltrúar á AkranesiVísir/Gvendur

Líkar stefnuskrár

Hún segir að enginn ágreiningur hafi komið upp á milli fulltrúa flokkanna tveggja.

„Þetta hefur í rauninni bara gengið ótrúlega vel og við höfum verið mjög samstíga í öllum málum og búin að þurfa mjög erfið mál í þessu. Stefnuskrárnar voru allar mjög líkar og mjög líkar hjá okkur báðum og málefnasamningurinn endurspeglar þau atriði.“

Aðspurð hvort samstarf með Sjálfstæðisflokki hafi komið til greina svarar Elsa:

„Við kölluðum þau á fund okkar og buðum þeim ákveðin sæti en þau ákváðu að taka það ekki og þar við situr bara.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×