Gamlir ársreikningar Flokks heimilanna loks skilað sér Sigurður Mikael Jónsson skrifar 2. febrúar 2018 05:30 Flokkur heimilanna hefur loks skilað inn fullnægjandi ársreikningum til Ríkisendurskoðunar vegna áranna 2015 og 2016.
Flokkur heimilanna hefur loks skilað inn fullnægjandi ársreikningum til Ríkisendurskoðunar vegna áranna 2015 og 2016. Flokkurinn bauð fram til alþingiskosninganna 2013 og hlaut ríflega þrjú prósent atkvæða og vann sér þar með rétt til framlaga úr ríkissjóði. Á tímabilinu 2013 til 2016 fékk flokkurinn rúmar 29 milljónir króna úr ríkissjóði. Fréttablaðið greindi frá því í október síðastliðnum að flokkurinn hefði skilað inn ársreikningi fyrir 2015 í febrúar í fyrra. Reikningurinn reyndist aftur á móti óendurskoðaður og óskaði Ríkisendurskoðun eftir frekari gögnum og skýringum á rekstri flokksins. Áður hefur verið seinagangur á ársreikningaskilum flokksins en í desember 2015 munaði minnstu að Ríkisendurskoðun kærði vanskil á reikningi ársins 2014 til lögreglu, líkt og Fréttablaðið hefur greint frá. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2015 skilaði flokkurinn 1,6 milljóna króna hagnaði en skuldir námu rúmum tveimur milljónum. Árið 2016 var 820 þúsund króna tap á flokknum en námu skuldir rúmum 1,8 milljónum. Flokkurinn hefur ekki boðið fram til þings síðan 2013 en illdeilur hafa verið meðal stofnenda, sem meðal annars enduðu í meiðyrðamáli fyrir héraðsdómi. Þar var Pétur Gunnlaugsson, útvarpsmaður á Útvarpi Sögu, sýknaður í máli sem Kristján Snorri Ingólfsson, formaður flokksins, höfðaði vegna ummæla Péturs um að Kristjáni hefði láðst að greiða skuldir flokksins og þess í stað farið til Brasilíu á Heimsmeistaramótið í knattspyrnu 2014. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í fyrra kom fram að flokkurinn hefði borgað einkafyrirtæki formannsins og bróður hans 5,3 milljónir úr sjóðum flokksins þegar Pétur lét ummælin falla í júlí 2014.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira