Sorpflokkun ábótavant og verðmæti urðuð í Álfsnesi Sigurður Mikael Jónsson skrifar 2. febrúar 2018 07:00 Rannsókn á sorpböggum sem urðaðir eru í Álfsnesi sýndi að þar var of mikið af pappír og plasti. vísir/valli „
Almennt er þarna allt of hátt hlutfall pappírs, pappa og plasts. Sérstaklega pappírs og pappa og stjórninni finnst of mikið fara í urðun sem ekki á heima þar,“ segir Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs. Á fundi sínum á föstudag var stjórn Sorpu kynnt niðurstaða úr rannsókn Resource International á innihaldi sorpbagga sem urðaðir eru í Álfsnesi. Niðurstöðurnar voru á þann veg að stjórninni þótti tilefni til að hvetja fyrirtæki og stofnanir sérstaklega til betri flokkunar á endurvinnsluefni eins og pappír og plasti. Baggaður úrgangur sem fer í Álfsnes er að mestu uppruninn frá fyrirtækjum og stofnunum. Björn segir að rannsókn Resource International, sem hafi falist í að opna og greina innihald þessara bagga, hafi sýnt að þar var of hátt hlutfall endurvinnsluefna. Pappír og pappi sé verðmætt efni til endurvinnslu og of mikið af því sé sóað í urðun. Þegar magntölur síðasta árs hjá Sorpu eru skoðaðar segir Björn að mikil aukning hafi orðið á því magni sem fyrirtækið hefur tekið við undanfarin þrjú ár. Árið 2017 hafi raunar verið metár í þessum efnum og aldrei meira sorp fallið til.Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu.„Ef öll móttaka hjá okkur er skoðuð er um að ræða 13-15 prósenta aukningu í fyrra, ofan á sömu aukningu árið þar áður og tíu prósenta aukningu þar á undan. Þetta er veruleg aukning.“ Aðspurður segir Björn að þegar allur úrgangur sem Sorpa tekur við er talinn saman nemi hann um 230 þúsund tonnum í fyrra. Þar af er heimilisúrgangur 32 þúsund tonn. „Magnið hefur verið að aukast og er mælikvarði á hvað er að gerast í samfélaginu. Svo má færa rök fyrir því að þetta sé eðlilegt. Eftir hrun hélt fólk að sér höndum og byggingariðnaðurinn nánast hvarf. Nú er hann kominn aftur og nú er tíminn kominn þar sem fólk skiptir um innréttingar, parket og annað sem það gerði ekki fyrst eftir hrun.“ En ráðum við við allt þetta sorpmagn? „Við ráðum svo sem við þetta enn þann dag í dag, en það mega ekki vera mörg ár þar sem allt eykst um 15 prósent, þá springum við á limminu.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira