Bærinn keypti ræktina 27. janúar 2018 11:00 Dumbbell Getty mynd nr. 186863898 - skera út fyrir dúllu
Ísafjörður Ísafjarðarbær keypti um áramótin líkamsræktarstöðina Stúdíó Dan á Ísafirði. Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðar, segir að áform séu um að opna nýja líkamsræktarstöð annars staðar í bænum á næsta ári. „Við keyptum hlutafélagið um áramótin og ætlum að endurleigja búnaðinn og húsnæðið til einkaaðila sem mun sjá um reksturinn fyrir okkur. Svo eru áform um að byggja upp nýja og glæsilega líkamsræktarstöð á Torfnesi, við íþróttahúsið sem er þar og vonumst til að geta opnað þar á næsta ári. Það er mikilvægt að það sé starfandi líkamsræktarstöð í bænum, þetta er stór þáttur í lífi fólks og það eru orðnar búsetukröfur að þú getir farið í ræktina.“ Stefán Dan Óskarsson rak Stúdíó Dan. „Við opnuðum fyrir 33 árum, þá var engin líkamsræktarstöð hér og því var þetta algjört frumkvöðlastarf. Þetta hefur þróast, gengið í gegnum tískubylgjur og bankahrun. Ég hafði lært nudd og vantaði aðstöðu. Ég lét svo plata mig út í að kaupa tæki, var svo með ljósabekki og snyrtistofu á tímabili. Svo sprengdu iðkendur bara húsið af sér þannig að ég þurfti að hætta með nuddið og vera bara með líkamsræktina. Í upphafi voru tíu iðkendur en núna eru þetta orðnir 120 manns að meðaltali á dag.“ Stefán segir að þetta hafi verið mikið fjölskyldufyrirtæki. „Það er gaman af því að það eru nokkrir iðkendur sem eru með þrjá ættliði þarna í stöðinni. Og eins með starfsfólkið, við erum með þrjá ættliði, ég og konan, svo börn og barnabörn, alvöru fjölskyldufyrirtæki.“ – aig
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira