Allardyce: Þurfum að stoppa besta framherja í heimi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. janúar 2018 12:00 Allardyce vann með Harry Kane á þeim stutta tíma sem hann var landsliðsþjálfari Englands vísir/getty
Everton verður að hafa heimil á „besta framherja í heimi“ ætli liðið að fara með sigur á Wembley í dag segir knattspyrnustjórinn Sam Allardyce. Everton mætir með nýja framherjann sinn, Cenk Tosun, í heimsókn til Tottenham í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Í liði Tottenham er hins vegar markahæsti maður síðustu tveggja tímabila sem er búinn að skora 18 mörk í úrvalsdeildinni til þessa, Harry Kane. „Ég held Harry Kane sé besti markaskorari heims um þessar mundir. En hann hefur líka meira en það, hann getur haldið boltanum, gefur stoðsendingar og er líklegast besti framherji heimsins,“ sagði Allardyce. „Hann er með sjálfstraustið í lagi, hann skorar mikið af mörkum að meðaltali í hverjum leik og hann fær mikla þjónustu frá liðsfélögum sínum.“ Gylfi Þór Sigurðsson fór ekki vel af stað með Everton á tímabilinu en er hægt og rólega að sanna virði sitt betur og betur og hann skoraði í bikarnum gegn Liverpool um síðustu helgi. „Þið sáuð gæðin í marki Gylfa á móti Liverpool, við þurfum meira af slíkum gæðum á síðasta þriðjungnum,“ sagði Allardyce á blaðamannafundi sínum fyrir leikinn gegn Tottenham. Everton missti sinn helsta markaskorara til Manchester United í sumar og náði ekki að festa kaup á nýjum framherja, en vonast til að Tosun sé maðurinn sem geti loks fyllt skarð Romelu Lukaku. „Við verðum fyrir vonbrigðum ef hann gerir það ekki, en við verðum að sýna þolinmæði. Hann lítur út fyrir að hafa alla þá hæfileika sem þarf til þess að ganga vel, en það er aldrei hægt að tryggja það þegar leikmenn koma erlendis frá,“ sagði Allardyce, en Tosun er tyrkneskur og kemur frá Besiktas í heimalandinu. „Leikmönnum með stærri ferilskrá en Cenk hefur mistekist hrikalega í ensku úrvalsdeildinni, en við vonumst eftir því að honum gangi vel.“ Leikur Tottenham og Everton hefst klukkan 17:30 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjá meira