Innlent

Strípalingur sveiflaði skilti á Sæbraut

Gissur Sigurðsson skrifar
Umferðarskilti eru til margra hluta nýtileg.
Umferðarskilti eru til margra hluta nýtileg. Vísir/Andri Marinó
Ölvaður maður var handtekinn á Sæbraut í Reykjavík laust fyrir klukkan þrjú í nótt þar sem hann stóð ber að ofan úti á miðri götu og hampaði þar umferðarskilti. Vegna ástands hans var hann vistaður í fangageymslu.

Þá voru þrír ökumenn teknir úr umferð vegna fíkniefnaaksturs og voru teir þeirra réttindalausir eftir að hafa hvað eftir annað verið gripnir fyrir samskonar athæfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×