Stunda kappflug með dróna innanhúss á veturna Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 6. janúar 2018 18:55 Drónarnir sem um ræðir eru af smærri gerðinni. Vísir/Sigurjón
Drónar af hinum ýmsu stærðum og gerðum hafa notið síaukinna vinsælda undanfarið. Yfirleitt er þeim flogið utandyra, en í sumum tilfellum einnig innan dyra. Félag íslenskra kappflugmanna stendur fyrir reglulegum æfingum þar sem áhugafólk um dróna etur kappi og leikur listir sínar. „Við erum að koma saman og fljúga litlum drónum, eða svokölluðum míkró-drónum, og við erum að fljúga þeim í gegnum hlið, eins og þið sjáið hérna fyrir aftan okkur og það er bara fyrstur til að klára brautina, hraðastur í gegn hann vinnur,” segir Helgi Rúnar Sævarsson, kappflugmaður í samtali við Stöð 2. Með því að setja upp þar til gerð gleraugu slást iðkendur í för með drónanum sem er stýrt með fjarstýringu og þeim flogið í gegnum hliðin. Að sögn Helga borgar það sig að sitja á meðan drónanum er stýrt enda sé hætt við því að fólk fái svima ef það er standandi með gleraugun á nefinu. „Við erum bara að æfa okkur í þessu. Venjulega erum við á sumrin að keppa í þessu úti með stærri dróna en útaf bara veðri og vindum þá erum við hérna inni núna,” segir Helgi. Það er ekki síður partur af áhugamálinu að nostra við drónana og lagfæra þá en oft verða þeir fyrir hnjaski í hamaganginum. Þeir allra áhugasömustu um drónana setja jafnvel saman sinn eigin dróna frá grunni og margir eiga fleiri en einn og jafnvel fleiri en tvo til öryggis. Þegar um keppni er að ræða er markmiðið að komast í gegnum brautina á sem skemmstum tíma. „Við byrjuðum fyrir jól, þá vorum við að skrönglast í gegnum þessa braut kannski á rétt tæpri mínútu en núna er það komið undir 20 sekúndur þannig að þetta er allt að koma,” segir Helgi. Sjálfur tók hann fyrst þátt síðasta sumar og þá utandyra með stærri og hraðskreyðari dróna. Margir í hópnum hafa tekið þátt í tvö til þrjú ár en félagið býður nýja iðkendur ávalt velkomna. „Sá sem er búinn að æfa sig mest hann kemst í brautina án þess til dæmis að hrapa. Það er ekkert mál að klessa á hliðið eða mistakast, þú vinnurðu ekki mikið þegar þú hrapar.”
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira