Aguero tryggði City sigur í uppbótartíma Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 9. janúar 2018 21:46 Sergio Aguero er markahæsti leikmaður Manchester City frá upphafi vísir/getty
Sergio Aguero stal sigrinum fyrir Manchester City gegn Bristol City í undanúrslitum enska deildarbikarsins í fótbolta. Fyrri hálfleikur leiksins var stórkostleg skemmtun og var ekki að sjá að þarna væri 1. deildar lið að mæta liði sem er líklegast besta félagslið í heimi í dag. Bæði lið sóttu og áttu fjölmörg tækifæri. Það vantaði herslumuninn hjá Bristol og Manchester City náði ekki að nýta sér marktækifæri sem hefðu á flestum dögum dottið með þeim. Á síðustu mínútum hálfleiksins sótti Bristol að marki City og John Stones felldi Bobby Reid innan vítateigs og fékk dæmda á sig vítaspyrnu. Reid fór sjálfur á punktinn og skoraði framhjá Claudio Bravo í markinu. Gestirnir frá Bristol fóru með óvænta 1-0 forystu inn til búningsherbergja á Etihad vellinum. Heimamenn hafa fengið þokkalegan reiðilestur frá Pep Guardiola í leikhléi og var Bristol undir pressu nærri allan seinni hálfleikinn. Kevin de Bruyne var ekki lengi að jafna leikinn, en hann gerði það með skoti af stuttu færi á 55. mínútu. Bristol-menn gerðu þó vel í því að verjast áhlaupum City og leit allt út fyrir að leikurinn endaði með jafntefli þegar Argentínumaðurinn Sergiio Aguero skoraði á síðustu mínútu uppbótartímans, en hann hafði komið inn sem varamaður á 70. mínútu. Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði Bristol en þurfti að víkja fyrir Liam Walsh á 72. mínútu. Seinni leikur liðanna fer fram eftir tvær vikur, og myndi 1-0 sigur Bristol þar tryggja þeim sæti í úrslitunum á marki á útivelli.
Enski boltinn Mest lesið Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Jorge Costa látinn Fótbolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Fleiri fréttir Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Sjá meira