Grunur um fjárdrátt og starfsfólk í miklu áfalli Sigurður Mikael Jónsson skrifar 13. janúar 2018 07:00 Ábending um meint fjármálamisferli starfsmannsins fyrrverandi barst rétt fyrir jól. Talið er að það hafi staðið yfir frá 2010 til 2015. Vísir/Vilhelm „
Þetta er mikið áfall,“ segir Halldór Torfason, framkvæmdastjóri Malbikunarstöðvarinnar Höfða hf., um viðbrögð starfsfólks fyrirtækisins sem í gær var greint frá þeim tíðindum að fyrrverandi fjármálastjóri fyrirtækisins væri grunaður um fjármálamisferli á sex ára tímabili. Fjármálastjórinn fyrrverandi lést í nóvember 2016 eftir veikindi, aðeins 63 ára að aldri. Konan sem um ræðir hafði starfað hjá Malbikunarstöðinni í nærri þrjátíu ár þegar hún lést. Malbikunarstöðin er í eigu Reykjavíkurborgar en stjórn fyrirtækisins sendi fjölmiðlum tilkynningu vegna málsins í gær þar sem segir að 21. desember síðastliðinn hafi framkvæmdastjóra borist ábending um mögulegt misferli fjármálastjórans.Halldór Torfason, framkvæmdastjóri Malbikunarstöðvarinnar Höfða.vísir/anton brinkÞar sagði að skoðun stjórnenda fyrirtækisins hafi leitt í ljós að bókhaldsgögn studdu þessar grunsemdir og að stjórn fyrirtækisins og eiganda, sem er Reykjavíkurborg, hafi verið tilkynnt um málið. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hóf þegar rannsókn og frumskoðun hennar hefur leitt í ljós að hið meinta misferli nemur rúmlega 30 milljónum króna og er talið hafa staðið yfir árin 2010 til 2015. Þá segir í tilkynningunni að engar vísbendingar séu um að fjármálastjórinn fyrrverandi hafi átt sér vitorðsmenn innan fyrirtækisins. Rannsókn Innri endurskoðunar stendur enn yfir en niðurstöður þeirrar rannsóknar verða því næst lagðar fyrir Endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar sem hefur það hlutverk að ákveða framhald málsins. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er skýrslu um málið að vænta í næstu viku. Stjórnin segir í tilkynningu að frekari upplýsingar verði veittar þegar Endurskoðunarnefnd hafi farið yfir málið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira