Leki hrjáir sóknarbörn Bryndís Silja Pálmadóttir skrifar 20. janúar 2018 07:00 Halldór Konráðsson kirkjuvörður virðir fyrir sér skemmdir á altari Breiðholtskirkju sem orðið hafa eftir leka úr þaki byggingarinnar. vísir/stefán „
Ég man eftir jarðarför sem var ekkert hugguleg, þar sem maður þurfti að raða fötum í kringum kistuna til að taka við leka. Það er kominn tími á gluggana og í þakhettunni efst uppi er allt orðið fúið eins og grautur. Þetta helst bara uppi af gömlum vana.“ Svona lýsir séra Gísli Jónasson, prófastur og fyrrverandi prestur í Breiðholtskirkju, ástandinu á kirkjunni. Miklar skemmdir hafa orðið á byggingunni vegna skorts á viðhaldi. Byggingin var vígð árið 1988 og komu að sögn Gísla fljótlega í ljós annmarkar við verkið. „Þetta er flókin bygging og er í prinsippinu timburverk þar sem það eru í hæðinni miklir límtrésbitar, tólf bitar sem bera kirkjuna uppi. Þetta er skemmtilega hugsað en það kom fljótlega í ljós að bitarnir láku og það þurfti að fara í dýrar aðgerðir og klæða bitana með stáli,“ segir Gísli. Ástandið var fyrir fjórum til fimm árum svo slæmt að starfsfólk kirkjunnar þurfti reglulega að setja fötur á gólfið til þess að taka við leka af þakinu. „Ástandið er löngu komið á síðasta séns, það er ekki gaman að þurfa næstum að bjóða fólki regnhlíf eða þurfa að fjarlægja stóla úr miðri stólaröð svo menn sitji ekki undir leka,“ segir Gísli. Séra Magnús Björn Björnsson tók við stöðu sóknarprests í byrjun janúar en hafði áður starfað í Digraneskirkju. Magnús segir töluverðan mun á þessum tveimur kirkjum en sóknarbörn eru langtum færri í Breiðholtskirkju. Að sögn Magnúsar standa sóknargjöldin því varla undir rekstri kirkjunnar, hvað þá kostnaðarsömum viðgerðum. Ef ekkert er að gert, blasir gjaldþrot við. Nýlega fékk söfnuðurinn þó styrk úr Kirkjumálasjóði til þess að meta skemmdirnar, en enn er óvíst hvað viðgerðirnar munu kosta. „Það hefur verið klastrað hér í hálfgerðri sjálfboðavinnu. Það er til dæmis einn maður í kórnum sem hefur haft það fyrir áhugamál að klifra upp á þakið og kítta í rifur, en það eru auðvitað ekki viðgerðir,“ segir Gísli. Einnig er verið að skoða sameiningu á Breiðholtskirkju og Fella- og Hólakirkju en að sögn Gísla og Magnúsar stendur ekki til að selja bygginguna eða hætta þar kirkjustarfi endanlega. „Áður en gengið væri til sameiningar þurfum við að vita hvað er fram undan, ef sameinað yrði, yrði ekki önnur kirkjan seld. Það yrði að reka bæði húsin áfram,“ segir Gísli en söfnuðurinn í Breiðholtskirkju er sá minnsti á höfuðborgarsvæðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Erlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Erlent „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Viðskipti innlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent Fleiri fréttir Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Rafmagnslaust á Granda Nítján í haldi vegna fíkniefnainnflutnings um Keflavíkurflugvöll Mál Margeirs til Landsréttar Fjármálaráðherra ánægður með söluna á Íslandsbanka Hvetja kattaeigendur til að setja kettina í útivistarbann „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum Ökumenn séu oft með óþarfa munnsöfnuð og fingurinn á lofti Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Óvíst hvar börnin lenda í haust Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Sjá meira