Kom ekki til greina að selja í opnu útboði Sveinn Arnarsson skrifar 8. apríl 2017 06:00 Vífilsstaðaspítali er ekki með í kaupunum. vísir/stefán „
Nei, það kom ekki til greina,“ segir Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, þegar hann var spurður hvort það hafi komið til álita að selja 200 hektara land Vífilsstaða í opnu útboðsferli. Garðabær og ríkið hafa komist að samkomulagi um kaup hins fyrrnefnda á landinu. Hafa samningaviðræður verið í gangi milli aðila allt frá árinu 2014 en fóru almennilega á skrið í ágúst í fyrra. Landið sem um ræðir er alls 202 hektarar í kringum Vífilsstaði og er söluverðið 558 milljónir króna. Til samanburðar var Hafnarfjarðarbæ gert að greiða rúmar 600 milljónir króna í eignarnámsbætur árið 2014 fyrir land í Kapelluhrauni sem var fjórðungi minna en þetta land.Benedikt JóhannessonKrafa hefur verið uppi í samfélaginu um að ríkiseignir séu seldar í opnum gegnsæjum útboðsferlum eftir að hlutur ríkisins í Borgun var seldur í bakherbergjum í lokuðu ferli. Markmið með opnum útboðum og gegnsæi er að hámarka tekjur ríkisins af sölu eigna og fá hæsta mögulega verð fyrir eignirnar. Benedikt segir ekki hægt að líkja þessu við Borgun. „Það er þannig að bæjarfélagið borgar fyrir þetta og svo er lóðasölunni skipt milli ríkis og bæjar. Þetta er því ekki þannig að við seljum landið og svo ekkert meira. Með þessu tryggjum við okkur fram í tímann,“ segir Benedikt. „Við viljum að þetta land sé nýtt til að draga úr skorti á lóðum og íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Ég tel það mjög hollt fyrir markaðinn að framboðið verði í hlutfalli við eftirspurn eftir íbúðum. Einnig hefur Reykjavíkurborg horft til ríkislóða í borginni. Við höfum tekið því ágætlega að gera slíkt hið sama í borginni,“ segir Benedikt.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Fleiri fréttir „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Sjá meira