Byggja frumgerðir af veggnum umdeilda Samúel Karl Ólason skrifar 31. ágúst 2017 23:01 Margskonar girðingar eru nú þegar á landamærum ríkjanna. Vísir/AFP
Fjögur bandarísk verktakafyrirtæki hafa verið valin til að byggja frumgerð af mögulegum vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Um er að ræða níu metra langa og allt að níu metra háa veggi sem byggja á á næstu vikum. Embættismenn munu svo verja tveimur mánuðum í að kanna hvort þeir komist í gegnum þessa steyptu veggi með smáum verkfærum. Einnig verður útlit þeirra kannað og hve auðvelt verði að klifra yfir þá. Veggurinn umræddi er eitt af kosningaloforðum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sem einnig hélt því fram að hann myndi þvinga yfirvöld í Mexíkó til að borga fyrir gerð veggjarins. Þar segja menn þó að það komi alls ekki til greina. Nú hefur forsetinn sagt að Bandaríkin muni punga út fyrir veggnum og að Mexíkó muni greiða fyrir það síðar. Jafnvel kæmi til greina að þekja vegginn með sólarrafhlöðum og borga hann upp með framleiðslu rafmagns.Samkvæmt frétt BBC sendu rúmlega 200 fyrirtæki inn tillögur af veggjum sem þau gætu reist á landamærunum. Þau fjögur fyrirtæki sem voru valin til að smíða frumgerðir munu fá hálfa milljón dala hvert til verksins. Það samsvarar um 52 milljónum króna.Til stendur að tilkynna samninga um fjórar aðrar frumgerðir á næstu vikum. Þær verða þó ekki úr steypu. Starfsmenn Hvíta hússins hafa haldið því fram að framkvæmdin gæti í heild kostað á milli átta til tólf milljarða dala. Sérfræðingar Heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna áætla hins vegar að kostnaðurinn verði allt að 21 milljarður dala.
Mest lesið Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Innlent Segir milljarðahönnun skóla í Vogahverfi óraunhæfa Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira
Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Innlent
Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Innlent